Ægir - 01.09.1997, Page 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Lúðvík Kristjánsson stýrðiÆgi í tœp 18 ár:
„Sveiflur hafa alltaf verið
viðloða sj ávarútveginn66
kki verður farið yfir sögu tíma-
ritsins Ægis í 90 ár nema nefna
þátt Lúðvíks Kristjánssonar, frceði-
manns, rithöfundar og áhugantanns
um sjávarútveg, en hann var þriðji
ritstjóri Ægis og eimt af þeim sem
lengi unnu að útgáfunni, eða í tœp
18 ár, þe. frá 1937 til 1954.
Ekki einasta naut íslenskur sjávarút-
vegur krafta Lúðvíks við ritsmíðar á
meðan hann var ritstjóri Ægis heldur
liggur og eftir hann hið mikla ritverk
íslenskir sjávarhættir en á því byrjaði
Lúðvík á meðan hann vann við blað-
ið. Lúðvík býr nú á Hrafnistu í Hafnar-
firði og segist hættur öllum ritsmíðum
en hann fylgist grannt með öllum
fréttum af sjávarútvegi, les allt sem í
Morgunblaðinu birtist tengt greininni
og að sjálfsögðu les hann Ægi upp til
agna í hverjum mánuði. En hvað
( skyldi Lúðvík telja að staðið hafi upp-
úr í sjávarútvegi á þeim tíma sem
hann sat í ritstjórastól blaðsins.
„Fyrst og fremst voru þetta bæði
kreppu- og uppgangsár í sjávarútveg-
inum. Ég byrjaði við blaðið á meðan
kreppan stóð en síðan kom stríðið og
afleiðingar þess voru uppgangur. Þetta
tímabil einkenndist því af sveiflum,
eins og alltaf hafa verið viðloða ís-
lenskan sjávarútveg," segir Lúðvík og
bætir við að þessi muni einkenni sjáv-
arútvegs á íslandi verða um ókomna
framtíð - stutt á milli niður- og upp-
sveiflna. Ekki sé samt annað að sjá en
þessi sveiflueinkenni komi íslending-
um oft á óvart og út frá því megi segja
að þjóðin læri ekki alltaf af reynsl-
unni.
Lúðvík segir að á kreppuárunum
hafi allir átt erfitt og fáir staðið sterk-
ari en aðrir. „Já, það voru fáir sem
stóðu upp úr. Það var ekki fyrr en í
kjölfar áhrifa frá stíðinu sem einhverj-
ir fóru að hífa sig upp. Þetta gerðist
ekki mjög hratt en samt sem áður
voru sumir að rétta vel úr kútnum. Til
Lúðvík Krístjánsson á heimili sínu að Hrafhistu í Hafnarftrði. Hann segist hcettur öllum skríftum en fylgist með Ægi og öðrum þeim
fjölmiðlum sem bera fregnir úr sjávaríitvegi. Mynd: ]óh
ÆGÍR 11