Ægir - 01.09.1997, Síða 18
um og læsa íbúðinni, sé ekkert aðhafst
til að bjarga frá hruni."
„Engin tækifæri má láta ónotuð"
Við af Sveinbirni tók Lúðvík Kristjáns-
son í ársbyrjun 1937. Hann vék að því
í fyrsta blaði sínu að engan hefði órað
fyrir svo miklum breytingum sem orð-
ið hafi í sjávarútvegi á fyrstu áratugum
aldarinnar. „En þrátt fyrir það mun oss
íslendingum hentast að fylgjast sem
bezt með í fiskimálum erlendra þjóða.
Þar verða stöðugar breytingar og fram
hjá þeim verður ekki gengið, nema að
höfuðatvinnuvegur vor bíði við það
mikla og ómetanlega hnekki. Ég veit,
að það mun allra mál er á annað borð
láta sig nokkru skipta þessi málefni, að
vér megum engin þau tækifæri láta
ónotuð sem leitt gætu til þess að opna
sjávarafurðum vorum nýjar leiðir á
heimsmarkaðin og skapa þeim þar
verðandi sess."
í þessum anda byggði Lúðvík blað
sitt upp þann tíma sem hann ritstýrði
Ægi, eða til 1954. Þar var að finna
blöndu af fræðandi efni sem greinina
varðaði, fregnir af nýjungum í veiðum
og vinnslu, sem og nýtingu sjávaraf-
urða. Erlent efni skipaði síðan tals-
verðan sess, sem og aflaskýrslur og
annað efni frá útgefandanum, Fiskifé-
lagi íslands.
Lúðvík hætti ritstjórn Ægis í árslok
1954 eftir farsælt tímabil. Síðustu árin
við Ægi hafði hann unnið að söfnun
efnis í hið mikla ritverk íslenska sjáv-
arhætti sem vafalítið teljast til dýr-
mætustu ritverka um sjávarútveg á
þessari öld.
Gefiö út hálfsmánaðarlega
En jafnframt ritstjóraskiptum í ársbyrj-
un 1955 urðu fleiri breytingar á Ægi.
Við ritstjórninni tók nú Davíð Ólafs-
Aflaskýrslur
ætíð fyrirferðamiklar
Ein kjölfestan í starfi Ægis í
gegnum tíðina hefur verið birting
á aflaskýrslum Fiskifélags íslands.
og útflutningsskýrslum. Saman-
tektir sem blaðið birti lengi framan
af öldinni úr landsfjórðungunum
um útgerð og aflabrögð, svo og
samantektir um veðráttu, eru ein-
stök heimild um lífsbaráttuna við
sjávarsíðuna og þær sveiflur sem
ætíð hafa fylgt sjósókn hér á landi.
Utan við pólitík
Er Sveinbjörn Egilsson tók við
ritstjórn Ægis árið 1914 réð Tryggvi
Gunnarsson, stjórnarmaður í Fiski-
félagi Islands, honum heilt. „Gættu
þess að halda ritinu utan við póli-
tík,“ sagði Tryggvi.
Við óskum Gná
til hamingju
með
endurnýjunina á
verksmiðjunni
HÉÐINNE
SMIÐJA
18 ÆG&R