Ægir - 01.09.1997, Síða 23
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
og saga þess er mjög glæst, í raun er
þetta saga sjávarútvegs á íslandi á þess-
ari öld. Á þeim grunni hefur Fiskifélag-
ið byggst upp í tæki sem greinin hefur
tækifæri til að nota sér til hagsbóta í
framtíðinni," segir Bjarni.
Á gmnni áðurnefndrar upplýsinga-
söfnunar félagsins er byggt viðamikið
útgáfustarf. Félagið hefur alla tíð verið
útgefandi Ægis og lengi framan af birt-
ust í blaðinu tölulegar upplýsingar sem
nokkur undanfarin ár hafa birst sem
Fiskifélag íslands
fylgirit með Ægi, þ.e. Útvegstölum.
Sama gildir um fylgibók Ægis, Kvóta-
bókina. Þá hefur félagið jafnan vandað
mjög til útgáfu Sjómannaalmanaks og
árlega safnar félagið saman upplýsing-
um um veiðar og hagnýtingu fiskafla
ársins á undan. Fiskimálastjóri segir að
í framtíðinni haldi félagið áfram upp-
lýsingastarfi fyrir sjávarútveginn.
„Ég sé fyrir mér tvíþætt starf félags-
ins í framtíðinni hvað þetta varðar.
Hvort sem félagið heldur áfram að
safna saman upplýsingum um greinina
þá er ljóst að alltaf þarf veruleg úr-
vinnsla að eiga sér stað, upplýsingun-
um þarf að koma á framfæri og þeir
sem eftir upplýsingum leita þurfa að
geta gengið að leiðbeiningum vísum
hjá félaginu. Hitt hlutverkið er hags-
munahlutverkið, sá vettvangur þar
sem raddir ólíkra aðila eru tengdar
saman í eitt og þar verði lagðar stærri
línur til framtíðar, ásamt því að móta
sjávarútvegsstefnu þá sem uppi er
hverju sinni."
-Má ekki segja að Fiskifélagið sé í
raun sú samhljóma rödd sem oft er tal-
að um að sjávarútvegurinn verði að
eiga?
„Jú, ég vil segja að hjólið sé til
staðar en kannski er það stirrt og þarf
svolítið viðhald til að renna betur."
Bjarni leggur áherslu á að í útgáfu-
málunum, sem og öllu öðru starfi
Fiskifélags íslands þá sé starfið án allra
ríkisstyrkja og hafi svo verið um árabil.
„Félagið fékk til ársins 1992 framlög
á fjárlögum til almenns rekstrar en af
gefnu tilefni þá hefur það alla tíð verið
þannig að Sjómannaalmanak félagsins
hefur staðið undir sér og aflað tii við-
bótar tekna til félagsstarfs Fiskifélags-
ins. Félagið nýtur því í dag engra opin-
berra styrkja og snertir ríkisvaldið ekki
á annan hátt en sem verktaki í verk-
efnum sem það hefur samið um að
taka að sér," segir Bjarni.
í dag starfa um 15 manns hjá Fiski-
félagi íslands að jafnaði og hafa starfs-
menn ekki um langt árabil verið svo
fáir.
U VARTA
OC
isnmæzam
W2MZZLZZI3ZZ3Í
STARTGEYMAR
STÖÐUGEYMAR
<
Q.
cn
w donaldson ■
WFR/XM
SMURSIUR
ELDSNEYTISSÍUR
GLUSSASÍUR
SIMI 562 2262
FAX 562 2203
ÁGIR 23