Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1997, Síða 41

Ægir - 01.09.1997, Síða 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI við skólann hefur fækkað er eflaust að leita í þvi að hafin er kennsla í sjávar- útvegsfræðum við Háskóla íslands og Háskólann á Akureyri, sem ekki er nema gott eitt um að segja. Persónu- lega finnst mér fáránlegt að Norð- menn kenni okkur íslendingum sjáv- arútvegsfræði því það eigum við að geta gert sjálf, en á hinn bóginn er mjög gott að einhverjir fari út til náms og komi þá heim með aðra reynsiu. Greinin nýtur þess að einhverjir sæki út fyrir landsteinana eftir öðrum hug- myndum og öðrum sjóndeildarhring." -Hafa Norðmenn eitthvað að kenna okkur í sjávarútvegsfræðum? „Ég held að á því sé enginn vafi að við íslendingar erum fullfærir um að byggja þetta nám upp á íslandi og hið allra besta mál að það sé gert. En þetta er góður skóli hér í Tromsö og auðvit- að kominn yfir barnasjúkdóma sem hrjá allar svona stofnanir til að byrja með. Og þessi skóli hefur mjög góða aðstöðu og hér er starfsfólk sem verið hefur lengi við skólann og býr yfir mikilli reynsiu og þekkingu," segir Magnús. Mætti vera atvinnulífstengdari Tengsl skólans í Tromsö við greinina sjálfa í Noregi segir Magnús að mættu að ósekju vera meiri. „Tromsö var á árum áður sjávarútvegsbær en hefur á síðari árum breyst yfir í að vera alls- herjar þjónustumiðstöð og háskóla- bær. Hér er því hlutfallslega lítill sjáv- arútvegur en hann er meira stundaður úti í strandbyggðunum hér í kring. Skólinn hefur því ekki mikil tengsl út í greinina og lítið um að nemendur fari í faglegt nám úti í sjávarútvegsfyrir- tækjunum. Það finnst mér vanta inn í námið," segir Magnús. Norska skiljan þróuð í Tromsö Eins og áður segir snýr hluti af starfi Magnúsar við sjávarútvegsháskólann að rannsóknum á veiðarfærum. Þessar rannsóknir snúast um rækjuveiðar í troll í Barentshafi og við Svalbarða og einnig hefur Magnús komið að rann- sóknum í tengslum við þróun smá- fiska- og smárækjuskilja. „Þessi norska smáfiskaskilja sem margir þekkja er að mestu leyti hönnuð og prófuð af okk- ur hér í Tromsö og seiðaskiljan sem notuð er við rækjuveiðarnar er einnig að verulegu Ieyti þróuð hér. í raun má segja að þróun á skiljunum sé ávöxtur góðs samstarfs fiskifræðinga, veiðar- færasérfræðinga og sjómanna sjálfra. Seiðaskiljan sem nú er notuð við allar rækjuveiðar í Norður-Atlantshafi var upphaflega búin til af sjómönnum í grennd við Álasund hér í Noregi en þeir notuðu hana til að skilja marglyttu frá rækjunni. Síðan fréttu fiskifræðingar af þessu og eftir nokkrar vangaveltur sáu menn að kannski væri komin lausn á vandamáli sem lengi hafði verið glímt við, þ.e. að skilja smáfiskinn frá rækjuaflanum. Ég held að skiljurnar séu komnar til að vera til framtíðar og má segja að þær séu með því jákvæðara sem hafi gerst í togveið- arfæraþróun á síðari árum," segir Magnús en auk veiðarfærarannsókn- anna sér hann í vetur um kennslu í veiðarfæratækni við skólann og sinnir jafnframt kennslu í fiskifræði. Heitt í „Smugukolunum" í Norður-Noregi hefur hvað heitust umræða verið vegna Smuguveiða ís- lendinga á undanförnum árum og Magnús Þór kannast vel við hana. Hann þekkir vel til í Barentshafi og við Svalbarða eftir að hafa tekið þátt í fjölda rannsóknaleiðangra á þessum svæðum á undanförnum árum. Magn- ús segist skilja Norðmenn á margan hátt vel í Smugumálinu þó ekki sé hann sammála þeim. „Við íslendingar hefðum ekki setið aðgerðalausir og horft upp á erlendar þjóðir moka upp þorskinum okkar rétt utan við 200 mílna mörkin. íslendingar í Norður Noregi hafa þó aldrei orðið fyrir að- kasti vegna þessara mála þó vissulega sé oft heitt í kolum í samskiptum þjóðanna. Þeir Norðmenn sem eru mest uppteknir af umræðunni um Smuguveiðarnar er fólkið hér í Norð- ur-Noregi og þá sérstaklega strand- veiðisjómennirnir. Togaraaðallinn hér í landi kemur aðallega frá svæðinu í kringum Álasund og ég hef tekið eftir að þeir hafa nær alveg látið þessa um- ræðu framhjá sér fara. Trillukarlarnir og útgerðarmenn minni báta hér norður frá sjá margir í íslenska Smugu- flotanum holdgerving stórkapítalism- ans sem engu eiri og fari eins og logi yfir akur. Margir þeirra telja rányrkj- una vera í fyrirrúmi hjá þessum hópi. Það verður að segjast eins og er að ís- Norskur síldarbátur kemur að landi í Tromsö með góðan afla. Síldarbátar eru trygg eign í Noregi um þessar mundir enda síldaraflinn mjöggóður. ÆGiIR 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.