Ægir - 01.09.1997, Side 45
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Höfum við
gengið til góðs..?
Sá dagur rennur vísast
seint upp aö allir
veröi sammála um þróun
sjávarútvegsins hér á
landi, jafn snar þáttur
oggreinin er í daglega
lífinu. Enda kannski
greininni hollt aö snörp
umrϚa fari fram um
hana ef umræðan getur
orðið til góðs og stuðlað
að framgangi
sjávarútvegsins.
Framtíðin sker ein úr um
hvort umræða dagsins í
dag skilar einhverjum
árangri og hvort það sem
menn telja rétt í dag
kunni að reynast rétt
þegar nýr dagur rennur
upp. Þetta er jú einkenni
á fjölbreyttum
atvinnugreinum eins og
sjávarútveginum og fáar
þjóðir hafa viðlíka
reynslu afþessari grein
og íslendingar. Þann
tíma sem tímaritið Ægir
hefur gengið við hlið
sjávarútvegsins á íslandi
hefur vægast sagt margt
breyst, umbylting væri
kannski rétta orðið.
Spurningin sem brennur
á vörum á tímamótum
er jafnan sú hvort við
höfum gengið til góðs. Á
þessum tímamótum
leitaði blaðið með þá
spurningu til nokkurra
framámanna
greinarinnar.
Arnar
Sigurmundsson
fonnaður Samtaka
fiskvinnslustöðva:
„Fiskvinnslan hefur
tekið stórstígum
framförum “
„Að mínu mati má segja að í upphafi
þess tímabils sem hér um ræðir, þ.e.
síðustu 90 ára, hafi verið lagður
grunnur að því að gera sjávarútveginn
að þeirri stóriðju sem hann er í dag.
Það varð gífurleg breyting með
tilkomu vélbátanna á árunum 1905-
1906, hreinlega atvinnubylting.
Einkenni á sjávarútveginum okkar er
líka að fiskvinnslan hefur alltaf verið
stór þáttur og í henni hafa orðið
stórstígar framfarir. Ekki síst var stórt
skref stigið þegar hraðfrystingin varð
að veruleika á síðari hluta fjórða
ártatugarins og síðan má segja að
sölustarfsemin sem hefur fylgt í
kjölfarið, og íslendingar eru þekktir
fyrir um allan heim, hafi einnig verið
skref fram á við. Sömuleiðis vekur það
athygli þeirra sem skoða
sjávarútveginn á íslandi að hér er
tiltölulega fátt fólk að vinna og veiða
þann gífurlega afla sem kemur á land,"
segir Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva.
"Auðvitað hefur sjávarútvegurinn
gengið í gegnum mörg erfið-
leikatímabil. Núna á síðustu árum má
segja að samdráttur í þorskafla hafi
skapað mikla erfiðleika og leitt til þess
að fjölmörg fyrirtæki hafa orðið að
hætta starfsemi en önnur farið í
gegnum sameiningarferil og þannig
mun verða áfram. Samt sem áður held
ég að í nánustu framtíð sjáum við
sömu stöðu og uppi er í dag, þ.e. að
greinin samanstendur af fáum stórum
fyrirtækjum og miklum fjölda smærri
fyrirtækja.
Það síðasta sem hefur verið að
gerast í sjávarútvegi er að fyrirtæki
hafa í auknum mæli farið á hluta-
bréfamarkað og engin spurning að það
skref er af hinu góða. Þetta festir
fyrirtækin og tryggir betur rekstur
þeirra. Um leið má segja að ýmislegt
ÆCm 45