Ægir - 01.09.1997, Page 49
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
mjög eftirminnilegt þegar svört skýrsla
kom árið 1983 sem sagði okkur að
svona gætu veiðarnar ekki gengið leng-
ur og Hafrannsóknastofnun setti fram
tillögu um 200 þúsund tonna há-
marksþorskafla. Þá stóðu menn
frammi fyrir því verkefni sem var nán-
ast óleysanlegt, þ.e. hvernig ætti að
bregðast við slíkum niðurskurði. Þá
kom kvótakerfið til sem ég taldi í byrj-
un að yrði mjög erfitt í útfærslu en eft-
ir að hafa kynnt mér það í Kanada
mælti ég mjög með því að taka kerfið
upp og með þeim hætti einum gætum
við stjórnað hversu mikið við veidd-
um.
Við þurftum um tíma að sveigja af
leið og nota sóknarkerfi við hlið kvóta-
kerfisins en mönnum lærðist mjög
fljótt að það var óhagkvæmt. Eftir það
var tekið upp einstaklingsbundið kerfi
sem hefur haft meiri áhrif á íslenskan
sjávarútveg en nokkuð annað sem við
höfum gert á þessari öld.
Og þar tel ég að sé komið að svari
við þeirri spurningu hvort við höfum
gengið til góðs götuna fram eftir veg.
Ég segi að tvímælalaust hafi það verið
mesta framfaraspor í íslenskum sjávar-
útvegi þegar þetta kerfi var tekið upp
því það hefur stuðlað að vexti og við-
gangi fiskistofna og beinlínis komið í
veg fyrir hrun þorskstofnsins. Við
erum þar á réttri leið og allt rekstrar-
legt umhverfi í greininni hefur gjör-
breyst, ábyrgð einstaklinganna vaxið
og sífellt er leitað leiða til aukinnar
hagkvæmni. Þarna erum við staddir í
dag en ég segi að einu mistökin sem
gerð voru í upphafi voru að menn
treystu sér ekki til setja sambærilegt
kerfi á báta undir 10 rúmlestum sem
leiddi til glufu í kerfinu sem menn
voru fljótir að fara í. Þar með varð gríð-
arleg fjárfesting í smábátum sem okkur
sem erum ábyrgir fyrir rekstri stærri
skipa er ætlað að borga úreldingu á
núna. Það þykir mér ósanngjarnt en
við erum búnir að koma böndum á
þennan flota sem býr að vísu við alltof
góðan kost miðað við önnur fiskiskip."
-Eins og þú bendir á er einkenni á
þessari öld hversu gríðarlegar sveiflur
hafa verið. Telurðu það verða einkenni
sjávarútvegs okkar í framtíðinni?
„Nei, ég skal lofa því að þetta verður
ekki einkenni næstu aldar. Kvótakerfið
skýrir þetta, við höfum nú jafnvægi
með því að veiðiréttinum er skipt nið-
ur á hvern einstakan fiskistofn. Við
höfum núna góða stöðu í loðnunni án
þess að komi til stækkunar flotans og
sama mun verða þegar þorskstofninn
kemur upp. Svona sveiflur í smíðum
skipa munu því vonandi aldrei endur-
taka sig."
marel heildarkerfi
ViS óskum eigendum og starfsfólki
Útgerðarfélags Akureyringa hf. til hamingju meS
nýja Marel vinnslukerfið og MPS hugbúnaðinn.
Marel hf. Höfðabakka 9 • 112 Reykjavik • Sími: 563 8000 • Fax: 563 8001 • Netfang: info@marel.is
M3ÍR 49