Ægir - 01.09.1997, Page 70
90 ára
Loðnuverksmiðja Gnár í Bolungarvík endurbœtt:
Nýi búnaðurinn strax í
vinnslu sumarloðnu
í sumar hafa staðið yfir endurbætur
á loðnuverksmiðju Gnár hf. í Bol-
ungarvík og var nýr búnaður nánast
tekin í notkun jafnharðan.
„Við gátum ekki byrjað alveg í upp-
hafi sumarvertíðarinnar en fórum
fljótlega að taka við loðnu," segir Ein-
ar Jónatansson, framkvæmdastjóri
Gnár.
Héðinn hf. í Garðabæ var yfirverk-
taki við framkvæmdina en auk starfs-
manna fyrirtækisins komu margir
heimamenn að verki og í lokafrágangi
má segja að um 40-50 manns hafi ver-
ið í vinnu við breytingarnar. Einar seg-
ir að þær áætlanir sem gerðar hafi ver-
ið hafi staðist en verkið í heild hafi
orðið stærra en upphaflega var ráðgert
þar sem ýmis hliðarverkefni fylgdu
með í framkvæmdunum.
„Okkur sýnist þessi búnaður koma
A »11
mhii
RAFMÓTORAR
JOHAN
RÖNNING HF
slmi: 568 4000 - httpy/www.ronning.is
Breytingarnar í fullum gangi hjá Gná. Myndin var tekin í júlí í swnar en nánast var
byggt utan um nýju tœkin og á sama tíma var vinnsla komin í gang í húsinu. Mynd-.ióH
mjög vel út þannig að við erunr mjög
ánægðir með verksmiðjuna. En þetta
er lítil reynsla sem komin er, mann-
skapurinn er að kynnast tækjunum.
Nú er þetta allt orðið mjög tölvustýrt
og breytt frá því sem var. Við höfum
ekkert reynt við framleiðslu á hágæða-
mjöli framan af sumarvertíðinni en
munum fara í þá framleiðslu þegar
kemur fram á haustið og allt verður
komið í jafnvægi í verksmiðjunni. Sú
framleiðsla veltur samt á að hráefnið
sé fyrsta flokks," segir Einar.
Við breytingarnar á framleiðslugeta
verksmiðjunnar í Bolungarvík að
aukast um helming, þ.e. úr 250-300
tonnum á sólarhring í 5-600 tonn. í
verksmiðjunni var settur upp „vacum"
þurrkari frá Atlas en hann er sá eini
sinnar tegundar hér á landi en í ís-
lenskum verksmiðjum eru loftþurrkar-
ar algengastir. Nýi þurrkarinn var sett-
ur niður þar senr áður var gamall eld-
þurrkari en Gná hafði áður keypt tvo
gufuþurrkara frá Danmörku. „Vacum"
þurrkun hefur ekki verið reynd í verk-
smiðjun hér á landi fyrr en hér er
samt um vel þekkta þurrkunaraðferð
að ræða, t.d. í verkmsmiðjum í Dan-
mörku.
Gná hefur rekið verksmiðjuna í
Bolungarvík frá árinu 1993 en
upphaflega var fiskimjölsverksmiðjan
í Bolungarvík tekin í notkun árið
1963.
70 mm