Ægir - 01.09.1997, Síða 85
KEA-NETTÓ á Akureyri byggir upp kostvöruverslun fyrir skipin:
„Mikilvægt fyrir skipin að
geta fengið allar vörur
hjá einum aðilau
Við byrjuðum að undirbúa þessa
þjónustu um síðustu áramót en
tókum formlega til starfa í mars. Á
þeim tíma sem liðitm er hefur
viðskiptavinunum stöðugt verið að
fíölga og það er greinilegt að þjónustu
af þessu tagi er vel tekið Itjá
útgerðunum enda er mikilvœgt að
skipin geti fengið allar vörur í
gegnum eintt aðila í stað þess að
kokkarnir þurfi oft á tíðum að eyða
nœr allri landlegunni í útréttingar,"
segir Jóhatin Pálsson starfsinaður hjá
Nettó-Kosti á Akureyri setn er
dótturfyrirtœki stórmarkaðarins
KEA-NETTÓ. Með stofnun Nettó-
Kosts er œtluti stórmarkaðarins að
starfrœkja sérstaka þjónustudeild við
stærri eldhús, mötuneyti og ekki síst
skipin og bjóða vörurnar á hagstœðu
verði.
„Þetta eru vörur fyrir stór eldhús og
síðan búsáhöld og ýmsar vörur sem
tengjast skipunum, svo sem eins og
sjógallar, hnífar og þess háttar. Auk
þeirra vöruflokka sem við erum með
hér á staðnum þá útvegum við vörur
eftir pöntunum en markmiðið er að
viðskiptavinirnir þurfi ekki að leita á
marga staði heldur fái sinn kost allan
á einum stað. Við teljum okkur því
vera með allt frá saumnálum upp í
eldunartæki," segir Jóhann.
Nettó-Kostur hefur á síðustu mán-
uðum kynnt sína þjónustu í skipun-
um og hjá útgerðaraðilum en Jóhann
Jóhann Pálsson í höfuðstöðvum Nettó-
Kosts á Akureyri. Mynd-.ióH
segist leggja mikið upp úr að veita per-
sónulega og örugga þjónustu. Enn
sem komið er hefur fyrirtækið ekki
horft mikið út fyrir Norðurland en sér
norðlenskum skipum þó fyrir þjón-
ustu í þeim höfnum þar sem þau
koma. „Á þann hátt erum við að
senda vörur út um allt land en við ætl-
um að byrja okkar starfsemi hjá á
Norðurlandi en byggja þetta síðan
hægt en örugglega upp."
Þegar skip eru í löngu úthaldi þá
segir sig sjálft að það þarf mikinn kost
um borð. Jóhann segir dæmi um að
afgreidd hafi verið 8 tonn af matvæl-
um í eitt skip. „Kostur í skipin getur
síðan verið allt niður í 20 kíló þannig
að þetta er fjölbreytt. Markmiðið hjá
okkur er að menn geti lagt hér inn
pöntunarlista þegar skipin koma í
land og að síðan verði allt komið klárt
um borð þegar lagt er úr höfn að nýju.
Þetta skiptir miklu þegar um stuttan
landlegutíma er að ræða," segir Jó-
hann.
Ekki er einvörðungu um að ræða
þjónustu við íslensk skip því erlend
skip sem hafa komið til Akureyrar
hafa einnig nýtt sér þessa kostverslun,
til að mynda skip sem verið hafa í
endurbótum hjá Slippstöðinni. Þá sér
Nettó-Kostur einnig um kostþjónustu
við togara Mecklenburgar Hochseefis-
herei, dótturfyrirtækis ÚA, þegar þau
eru í höfn á íslandi.
„Raunar getum við sagt að þjónusta
af þessu tagi eigi sér lítil takmörk. Við
höfum til dæmis fengið beiðni um að
útvega herbergi til leigu á Akureyri og
í öðru tilfelli spurði útgerð eftir hvort
við gætum útvegað þeim kokk. Þetta
gátum við hvoru tveggja þannig að
maður þarf að vera viðbúinn ýmsu,"
segir Jóhann og brosir.
mm 85