Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 87
Þjónustufyrirtœkið ísmar hf. fagnar afmœli um þessar mundir:
Byltingarkenndar tækni-
breytingar á fímmtán árum
Starfsfólk ísmar hf. á afmœlisári
Strarfsmenn hjá ísmar hf. eru níu talsins. Frá vinstri: Örvar Þór Einarsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Sigurjón Hrafiikelsson, ída Þorgeirsdóttir, Birgir Benediktsson, Laufey Jónsdóttir, Ragnar Grétarsson, Jón
Ttyggvi Heigason og Reynir Guðjónsson.
N'ú í september fagnar fyrirtœkið
ísmar hf. í Reykjavík 15 ára af-
mceli en það er eitt af vel þekktum
þjónustufyrirtœkjum við íslenskan
sjávarútveg. Allt frá upphafi liefur
sala á siglinga- og fiskileitartœkjum
verið grundvöllur í starfi fyrirtœkis-
ins og er stór hluti íslenska skipaflot-
ans búinn tœkjum sem eiga œttir að
rekja til ísmar hf.. Nýjasti togari fiot-
ans, hinn nýi Pétur Jónsson RE, er
búinn öllum fiskileitar-, siglinga- og
staðsetningartœkjum frá ísmar,
ásamt fjarskiptabúnaði.
Birgir Benediktsson, þjónustustjóri
hjá ísmar, segir í samtali við Ægi að
stærstu þættirnir í starfseminni séu
sala á tækjabúnaði frá norska fram-
leiðandanum Scanmar og þýska fram-
leiðandanum STN-Atlas. Scanmar hef-
ur t.d. þróað aflanema, höfuðlínu-
nema og trollaugu en frá Atlas selur ís-
mar dýptarmæla og ratsjár. Sömuleiðis
er ísmar söluaðili á gyrókompásum og
sjálfstýringum frá C. Plath í
Þýskalandi. „Þetta er allt mjög reyndur
búnaður og traustur og vel þekktur í
íslenska flotanum," segir Birgir.
GPS-tæknin
skilar mikilvægum
upplýsingum
Á síðari árum hefur sala líka aukist í
GPS-staðsetningarbúnaði frá Trimble
en GPS tæknin hefur leyst af hólmi
Loran-C kerfið jafnt á sjó og landi.
Birgir segir að GPS búnaðurinn sé nú
mikilvægt vinnutæki um borð í skip-
unum enda mjög nákvæmt kerfi og
öruggt þar sem nákvæmnin er allt að
einum metra. Ekki sé óalgengt að skip
séu búin tvö- til þreföidu GPS kerfi til
að tryggja öryggi ef eitthvað fer úr-
skeiðis. „GPS búnaðurinn er ekki
skylda í fiskiskipunum en þetta eru
grundvallartæki sem vinna með jaðar-
tækjum, svo sem eins og radar og
plotter. Þannig fást mjög nákvæmar
upplýsingar um feril og staðsetningu
við veiðarnar. í raun gildir það sama
um allan tækjabúnað-
inn í skipunum að
þróunin hefur verið
gífurleg á undanförn-
um 15 árum. Sem
dæmi má taka að nú
geta menn látið radar-
inn reikna út stefnu,
fjarlægð og hraða ann-
arra skipa í kring og í
því felst öryggi," bætir
Birgir við.
ísmar hefur einnig
umboð fyrir Trimble
GPS-landmælingatæki
og flugleiðsögutæki og
hefur sala þeirra aukist
mjög á síðari árum.
Veiðarfæraskynjar-
arnir skiluðu strax
aflaaukningu
Mikil bylting hefur
orðið með skynjara-
ÆGIK 87