Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1997, Qupperneq 91

Ægir - 01.09.1997, Qupperneq 91
Skiparadíó-Rafhús: „Gaman að taka þátt í stórsókn JRC-tækjanna“ segirArnar Sigurbjörnsson eynsla okkar frá því við tókum upp samstarf Skiparadíós og Raf- húsa hefnr verið mjög skemmtileg. Sér í lagi hefur verið gaman að taka þátt íþeirri sókn sem JRC tœkin eru í alls staðar í heiminum um þessar tnundir. Vörulína þeirra hefur sífellt verið að breikka og batna þannig að JRC er okkar flaggskip í sölunni hjá Rafhús- um á sama hátt og Wesntar tœkin eru hjá Skiparadíó," segir Arnar Sigur- björnsson eigandi Skiparadíós en fyr- irtccki Itans keypti laust fyrir síðustu áramót fyrirtcekið Raflnís en fyrir- taekin eru áfram rekin aðskild en samkeyrð verkstœðisþjónusta og starfsmannahald. Rafhús hefur söluumboð fyrir jap- anska fyrirtækið JRC en um síðustu áramót hóf þetta fyrirtæki sókn að nýju inn á Evrópu- og Ameríkumarkað eftir nokkurt hlé. Arnar segir að ekki einasta byggist sókn JRC á enn meira úrvali vandaðri tækja fyrir fiskiskip og báta heldur sé jafnframt boðið lægra verð. Allt þetta undirstriki hversu mikla hlutdeild JRC ætli sér að ná og halda í Evrópu og Ameríku á siglinga- og fiskileitartækjum. Frá áramótum segir Arnar að mesta salan hafi verið í JRC tækjum fyrir minni báta en Japanarnir hafa einfaldlega ekki haft undan að framieiða tæki. „JRC er líka að bjóða nýja og góða línu fyrir smábátana og þar á meðal er Htill og nettur hattur sem sameinar móttöku á GPS merkinu og leiðrétting- arbúnað. Allt er þetta í þá átt að tækin verða minni en veita samt meiri upp- lýsingar. Þessa smábátalínu höfum við Dœmi um hvernig neðansjávarradar frá Wesmar vinnur. Hér getur skipstjórnandi bæði fylgst með undir skipinu og fyrir framan það. íslenskað þannig að allt skjáletur er íslenskt en við höfum alltaf lagt mikla áhersiu á að menn geti unnið á sín tæki á móðurmálinu," segir Arnar. Góð reynsla af neðansjávarradar frá Wesmar „Síðan höfum við líka verið að selja hjá Skiparadíó athyglisverðan neðan- sjávarradar frá Wesmar en að mínu mati er neðansjávarradar ekki síður mikilvægur en ofansjávarradar. Reynsl- an af þessu tæki síðan það kom á markaðinn í desember er mjög góð en tækið hefur m.a. verið reynt í línuskipi sem er á veiðum allt að 1000 föðmum og þá er hægt að nota tækið sem dýpt- armæli. Notkunarmöguleikarnir eru mjög miklir því sónarinn skilar þver- sniði af botninum og sýnir iíka 1000- 3000 metra fram fyrir sig og til hliðar. Við erum að setja tæki af þessari gerð í nótaveiðiskipið Börk og þar verður það notað til nótaveiða. Þar er um að ræða hátíðnitæki en þetta er lágtíðnitæki í línubátnum. Munurinn þar á er að há- tíðnin dregur styttra en gefur aftur á móti skýrari mynd af því sem sónarinn sér. Menn eru að fá mjög góðar myndir á þessum tækjum og Wesmar er líka með trollsónar, sem einnig verður sett- ur í Börk. Við getum eiginlega sagt að með trollsónarnum sér skipstjórinn lóðningu 1000 metra fyrir framan sig og getur stýrt torfunni milli hleranna og síðan sést torfan koma á skjánum inn í trollið á neðri mynd í tvískiptum skjá. Þetta er eiginiega farið að minna á stýringu á tölvuspili," segir Arnar. GDMSS kerfið að nálgast Skiparadíó hefur að undanförnu sett niður svokallað JLN-627 straumlog frá JRC í nótaveiðiskip, t.d. í Huginn VE- 55 í Vestmannaeyjum og einnig fer slíkur búnaður í Börk NK. Með þessum búnaði er hægt að mæla straum undir skipunum en þetta er sérstaklega mikil- vægt fyrir nótaveiðiskipin, að sögn Arnars. Straumlog sýnir líka fjögurra stefnu dýptarmæli á fjórskiptum skjá. Annar búnaður sem Arnar segir að sé að ryðja sér til rúms er fyrir GDMSS- fjarskiptakerfið en búnaður fyrir það á að vera kominn í öll skip fyrir ársbyrj- un 1999. Arnar segir að í stærri breyt- ingum, eins og t.d. með nótaveiðiskip- ið Börk noti menn tækifærið og setji þennan búnað en mikilvægt sé fyrir menn að fara að hugsa sinn gang fyrr en síðar því kerfið verður iagaskylda um allan heim í ársbyrjun 1999 og af- greiðslufrestur á tækjum er þegar tek- inn að lengjast. NGAIU 91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.