Ægir - 01.09.1997, Qupperneq 93
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Ögmundur Friðriksson við tœkin í
verslun Friðriks A. Jónssonar ehf.
Öll þessi tœki og fleiri til er að
fmna í brúm nútíma fiskiskipa.
FríðrikA. Jónsson ehf:
Farsæl samfylgd með
Simrad-tækj unum
¥7 aðir minn stofnaði fyrirtœkið
JT árið 1942 í kringum sölu á kvik-
myndavélum og öðru slíku en fljót-
lega þróaðist starfsemin út í búnað
tengdum sjávarútvegi og á þeitn
grunni hefur Friðrik A. Jónsson eltf.
starfað síðan," segir Ögmundur Frið-
riksson, framkvæmdastjóri og eigandi
Friðriks A. Jónssonar ehf.
Eftir seinna stríð var uppgangur í
sjávarútvegi á íslandi og á þeim tíma
hófst sú tækjaþróun sem síðan hefur
staðið og ekki sér fyrir endann á. I
þessu umhverfi byggði Friðrik A. Jóns-
son upp þjónustu sína við greinina og
byrjunin var sala á sónar- og radartækj-
um.
„Hann setti niður fyrsta radarinn í
íslenskt skip og sá búnaður þótti bylt-
ingarkenndur. Á þessu skipi var settur
pappi fyrir gluggana og siglt inn í
höfnina í Reykjavík eftir radarnum og
það þótti mönnum undur og stór-
merki," segir Ögmundur en þau tæki
sem Friðrik A. Jónsson byrjaði að selja
á þessum árum voru af gerðinni
Simrad og það vörumerki hefur alla tíð
fylgt fyrirtækinu síðan enda fyrirtækið
aðal umboðsaðili á íslandi.
„Fyrst hét þetta fyrirtæki Simonsen-
radio eftir eigandanum, Willy Simon-
sen. Sá hafði notað sónartæki til kaf-
bátaleitar i stríðinu og þar byrjaði
áhugi hans á framleiðslu tækja í þessa
veru. Upp úr þessu varð Simrad til og
er í dag orðið stórfyrirtæki með starf-
semi í mörgum löndum og framleiðsl-
an nær yfir öll þau tæki sem skip þurfa
að hafa í brúnni í dag," segir Ög-
mundur.
Sá grunntækjabúnaður sem nauð-
synlegur er í fiskiskipum nútímans er
fiskileitartæki, staðsetningartæki, dýpt-
armælar, fjarskiptatæki, ratsjár og höf-
uðlínusónar. Stærstan hluta þessa bún-
aðar segist Ögmundur geta boðið frá
Simrad en auk þess hefur fyrirtækið
uppá að bjóða t.d. ís- og ljóskastara frá
Norselight, Vingtor-kallkerfi og Robin-
son-sjálfstýringar.
„Til viðbótar við föstu tækin um
borð eru menn með varabúnað til að
grípa ef eitthvað bregður út af, sér í
lagi ef menn eru að fara á fjarlæg mið í
langt úthald. Búnaðurinn í skipunum
er þannig mjög mikill í dag," segir Ög-
mundur en segist aðspurður ekki telja
að kostnaður útgerðanna vegna tækj-
anna sé hlutfallslega meiri í dag en á
árum áður.
Fyrirtækið hefur á sínum snærum
tæknimenntað starfslið sem bæði sér
um sölu tækjanna, leiðbeiningar um
notkun og í þeim tilfellum sem við-
skiptavinir óska eftir hönnun kerfa um
borð er ieyst úr þeim óskum. Á árum
áður var oft farið á sérútbúnum bílum
um landið þar sem notkun Simrad-
tækjanna var sýnd og í tvígang hefur
komið hingað til lands bátur sem út-
búinn hefur verið fullkomnasta tækja-
búnaði frá Simrad.
„Þessu til viðbótar bjóðum við svo
viðhaldsþjónustu fyrir tækin enda þýð-
ir ekkert annað en bjóða viðskiptavin-
um upp á örugga og góða þjónustu,"
segir Ögmundur.
Hjá Friðrik A. Jónssyni starfa 8
starfsmenn.
AGIR 93