Ægir - 01.04.1998, Page 5
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri:
Fiskifélag íslands
iskifélag íslands var stofnað
20. febrúar 1911 og er því
að verða níutíu ára gamalt.
Á þessari löngu vegferð hef-
ur félagið margoft þurft að
laga sig að breytingum í þjóðfélaginu,
jafnframt því sem hlutverk félagsins
hefur tekið breytingum. Mæta þurfti
mismunandi þörfum atvinnugreinar-
innar og fylgja eftir þeirri tækniþróun
sem varð, en jafnframt að hafa þar um
nokkra forystu og aðstoða eftir efnum
og ástæðum. Enda hefur eitt aðal-
markmið félagsins frá upphafi verið að
efla hag greinarinnar og stuðla að fram-
fórum í íslenskum sjávaríítvegi.
Jafnframt þessu hefur tilgangur fé-
lagsins verið að vera sameiginlegur
starfsvettvangur í sjávanitvegi. Hér er að
finna grunninn að Fiskiþingum og var
fyrsta Fiskiþingið haldið árið 1913.
Síðan hafa verið haldin 55 Fiskiþing.
Fiskiþingin gengdu mikilvægu hlut-
verki í okkar sjávarútvegssögu og voru
óneitanlega öflugur, sameiginlegur
vettvangur sjávarútvegsins.
Þá er ónefndur stór þáttur í starf-
semi Fiskifélagsins, sem er að félagið
veitir stjómvöldum og öðrum sem eftir
því leita, umbeðna þjónustu. Þessi þáttur
í starfsemi félgsins varð fljótlega mjög
stór og má segja að hann hafi næstum
yfirtekið félagið. Þannig varð félagið
flokkað sem hálf opinber stofnun og
starfsfólk þess varð allt opinberir
starfsmenn, þar til á allra síðustu árum
að því var breytt.
Félagsleg starfsemi var fjármögnuð
með þeim afgangi sem varð á þjónust-
unni við stjórnvöld og atvinnugrein-
ina og eðlilega í starfsemi eins og hjá
Fiskifélaginu varð hún að fara fram
eftir því hvað forystumenn Fiskifélags-
ins, aðilar í sjávarútvegi og stjórnvöld,
hafa orðið ásátt um. Á síðustu árum
og áratugum hafa sérsamtök í sjávar-
útvegi verið að eflast og jafnframt hafa
stjórnvöld tekið fleiri verkefni beint til
sín eftir sem þeirra stofnanir hafa vax-
ið og eflst. Þannig hefur hagur félags-
ins versnað verulega og starfsemi þess
dregist mikið saman. Fiskifélagið, eins
og svo mörg félög sem stofnuð voru
um síðustu aldamót, ber merki þess
tíma. Fiskifélagið var félag deilda í
hverri verstöð og síðan voru fulltrúar
þeirra deilda sendir á fjórðungsþing,
sem síðan kusu fulltrúa á Fiskiþing.
Fiskideildirnar hafa verið mismunandi
margar og misvirkar í gegnum árin, en
um 1970 voru komin sérstök hags-
munafélög í sjávarútvegi og var þá
orðið mjög tvísýnt um tilurð Fiskifé-
lagsins. Þá voru gerðar breytingar á
samþykktum félagsins og þessum
hagsmunaaðilum gefinn kostur á að
koma sem sérstakir aðilar að Fiskiþingi
og Fiskifélaginu. Síðan er liðinn rúmur
aldarfjórðungur og enn á ný hafa orð-
ið breytingar, fiskifélagsdeildirnar hafa
orðið veikari og eru nánast aflagðar,
eins og svo margir þekkja í félagslegri
deyfð nútímans. Því var gerð tillaga að
nýjum samþykktum fyrir Fiskifélagið
þar sem hagsmunafélögunum í sjávar-
útvegi er falin forsjá Fiskifélagsins.
Þann 30. mars 1998 lauk framhalds-
fundi 56. Fiskiþings, með því að sam-
þykktar voru nýjar samþykktir fyrir
Fiskifélag íslands og síðan var félaginu
kjörin ný stjórn í samræmi við hinar
nýju samþykktir. Þessi atburður mark-
ar Fiskifélagi íslands alveg nýjar braut-
ir í málefnum sjávarútvegs á íslandi,
jafnframt því að enn á ný verður leit-
ast við að gera Fiskifélagið að sameig-
inlegum vettvangi fyrir sjávarútveg-
inn. Nú með því að í stað þess að leita
beint í grasrótina verði farið í gegnum
hagsmunasamtökin í sjávarútveginum
og þannig fundin leið sem getur lýst
viðhorfum þeim er ríkja á hverjum
tíma í atvinnugreininni.
Markmiðum sínum hyggst félagið
ná með því, að takast á hendur verk-
efni sem varða sjávarútveginn í heild
og víðtæk samstaða næst um að félag-
ið sinni. Og starfsemi sína hyggst fé-
lagið fjármagna með þeim verkefnum
sem það tekur að sér fyrir stjórnvöld
og sjávarútveginn.
Fiskifélag íslands er að taka enn eitt
nýtt skref á langri vegferð og vona ég
að félagið fái verðug verkefni frá at-
vinnugreininni sjálfri svo og frá
stjórnvöldum. Nýrri stjórn óska ég til
hamingju og vona að við getum í sam-
einingu róið Fiskifélagsfleyinu til
nýrra vegsauka á ólgandi hafi.
MÆ 5