Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1998, Side 9

Ægir - 01.04.1998, Side 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI vegsmálum, að það þurfi að ieggja fé- lagið niður vegna þess að það hafi engum verkefnum að sinna sem gefi því tekjur. Auðvitað hafa tímarnir breyst á þessu tímabili og mörg sam- tök orðið til sem hafa tekið við hinum ýmsu verkefnum sem Fiskifélagið sinnti á sínum tíma. Til þess að leggja ekki niður Fiskifélag íslands þá hafa menn farið að ieita leiða, eða í mínum huga, að leita að góðum fjárfestum. Og það er búið að finna þá til að halda lífi í þessu félagi," sagði Kristján í ræðu sinni. Fiann ræddi starf fiskifélagsdeild- anna og lýsti þeirri skoðun sinni að ekki sé ástæða til að hafa ákvæði um þær áfram inni í samþykktum Fiskifé- lagsins. Kristján lagði síðan fram til- lögu sína þess efnis að fella ákvæði um fiskifélagsdeildirnar út úr samþykktun- um, en hún var felld, eins og áður seg- ir. „Getur ekki orðið nema af því góða“ Aðalsteinn Valdimarsson á Eskifirði sagðist óska breyttu Fiskifélagi allra heilla í nýju hlut- verki. Hann minnti á að félag- ið hafi verið stofn- að á sínum tíma til að vinna ís- lenskum sjávarút- vegi gagn. ,,Ég vona að með þessum breytingum geti félagið orðið til þess að vinna þjóðinni í heild gagn og halda áfram, þrátt fyrir breyttar að- stæður, að vera sá vettvangur sem menn geti komið með hinar ýmsu skoðanir. Þannig verði félagið aftur gert að þeim vettvangi sem þarf að vera fyrir alla aðila í sjávarútvegi á ís- landi. Þrátt fyrir að hagsmunaaðilar hafi tekið til sín málefni sem áður voru hjá Fiskifélaginu þá sýnist mér að sá sameiginlegi vettvangur sem Fiski- félagið hefur verið þurfi að vera til áfram og að hann geti ekki orðið nema af því góða. Skoðanaskipti, hvort sem þau fara fram með góðu eða með skömmum og látum eiga alltaf rétt á sér. Við höfum öll rétt á að hafa skoðanir á málunum og eigum ekki að liggja á þeim úti í horni," sagði Aðal- steinn. „Ég óska félaginu allra heilla í fram- tíðinni og vona að þær breytingar sem nú er verið að gera verði til þess sem þeir ætlast til sem að hafa staðið." „Eigum að standa saman" Leif Halldórsson á Patreksfirði sagðist sannfærður um að þeir sem vinni í sjávarútvegi á íslandi séu undantekningalítið gott fólk sem leggi mikið á sig fyrir sína atvinnu og greinina í heild. Hann sagðist harma þá umræðu sem gangi út á að aðilar úthrópi hverjir aðra „eins og ótýnda glæpa- menn," eins og hann orðaði það. „Ég var í 30 ár á sjó, bæði á gufutogurum og bátum og gerði út eigin báta. Ég hef aldrei kynnst öðru en indælu fólki í þessu sem hefur unnið dag og nótt að sínu. Ég botna ekkert í því þegar verið verið er að tala um þetta fólk eins og einhverja glæpamenn. Hvert eigum við að leita ef við reynum ekki að standa saman, fólk sem er í veiðum, vinnslu, samtökum á borði við LÍÚ, Landssambandi smábátaeigenda og víðar? Ég mæli með því að við djöflum þessu félagi upp í að verða gott félag." Fráfarandi stjórn á síðasta fundi Fyrir Fiskiþing þaim 30. mars síðastliðinn kom fráfarandi stjórn Fiskifélags ís- lands saman til síðasta fnndar og var myndin tekin við það tœkifœri. Stjórnina skipuðu: Aftari röð frá hœgri: Flalldór Guðbjömsson, Guðjón A. Kristjánsson, Pétur Bjantason, Ágiist Elíasson, Örn Pálsson, Helgi Laxdal og Elínbjörg Magnúsdóttir. Fremri röð frá hœgri: Kristján Loftsson, Einar K. Guðfinnsson, formaður, og Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri. Á myndina vantar eftirtalda stjómarmenn: Jóhann Þór Halldórsson, Magnús Magnússon, Hjört Gíslason og Hóhngeir Jónsson. Aðalsteinn Valdi- marsson. AGIR 9

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.