Ægir - 01.04.1998, Side 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Helstu mál og stærðir
Aðalmál í dag í upphafi
Mesta lengd (Loa) 55,34 m 44,71 m
Lengd milli lóðlína 49,93 m 38,84 m
Breidd (mótuð) 9,00 m 9,00 m
Dýpt að neðra þilfari 4,30 m 4,30 m
Dýpt að efra þilfari 6,70 m 6,70 m
Rými og stærðir
Eiginþyngd 730 tonn 527 tonn
Særými við 5,6 m djúpristu 1642 tonn 1190 tonn
Lestarými 745 m3 510 m3
Brennsluolíugeymar 170 tonn 106 m3
Ferskvatnsgeymar 25 tonn 15 m3
Stafnhylki (sjór) 55 tonn 29 tonn
Mæling
Rúmlestatala 550,75 Brl 438 Brl
Brúttótonnatala 756,00 BT
Nettótonn 235,00 NT
Rúmtala 1812,7 m3 1503,1 m3
Skipaskrár númer 1610
Aflvísir 10.035
Áætluð bryggjuspyrna 41,5 tonn
sjókjölfestu ásamt bógskrúfurými, I-
forlest, II-lest og sónarklefi, III-lest, IV-
lest, vélarúm og skuthylki fyrir elds-
neyti. Undir lestarýmum eru botn-
geymar fyrir brennsluolíu.
Fremst á aðalþilfari eru geymsla og
keðjukassar, nýinnréttað hjálparvéla-
rúm með ljósavél og rafknúnum
vökvadælum, þá fremra milliþilfars-
rými, þar fyrir aftan aftara milliþilfars-
rými, íbúðir og í skut er nótakassi.
Fremst á efra þilfari er hvalbakur
sem settur var á skipið árið 1988 og
aftantil á þilfarinu er þilfarshús og
brú. Aftan við þilfarshús er nótakassi.
íbúðir
í ísleifi eru íbúðir og klefar fyrir 14
manna áhöfn í eins og tveggja manna
klefum. í íbúðahúsi á aðalþilfari er
matsalur bakborðmegin, samtengdur
setustofu miðskips. Þá er eldhús,
vélareisn og matvælageymslur. Stjórn-
borðsmegin fremst er geymsla, dælu-
og mótorrými, þá stigahús niður í vél
og þar fyrir aftan eru þrír eins manns
klefar og þrír tveggja manna klefar
þverskips aftast. Eins manns klefi er
bakborðsmegin milli matvælageymslu
og tveir tveggja manna klefar eru aft-
ast. Miðskips eru gangar, salerni,
þvottahús og aftarlega kæli- og frysti-
geymsla.
í þilfarshúsi á éfra þilfari er íbúð
skipstjóra með setustofu. Þar fyrir aft-
an er sjúkrakléfi og klefi stýrimanns
og aftast bakborðsmegin er skorsteins-
hús ásamt yfirbyggðum gangi með
stakkageymslu.
Lestarrými
Skipið var lengt árið 1993 um 16
bandabil, hvert 500 mm, eða alls 8
metra. Lengingin kemur öll fram í III-
lest (miðlest) sem er innréttuð með
uppstillingu og með eina lestarlúgu á
milliþilfari. Il-lest og IV-lest eru inn-
réttaðar sem tankar, þrír í hvorri lest
með lestarlúgum á milliþilfari. Allar
lestar utan I-forlest eru einangraðar
með plasti og klæddar með stáli. Milli-
þilfarsrýmið er tvískipt með þverskips
þili við band P, sem er fremsti hluti 8
metra lengingarinnar frá 1993. Milli-
þilfarsrýmin eru innréttuð með upp-
stillingu.
Bakki
Hvalbakurinn var endurskipulagður
sem vélarúm og dælurými. Hann er
einangraður í hólf og gólf.
Vélbúnaður
Aðalvél ísleifs var rúmlega tvítug þegar
henni var skipt út fyrir nýja. Gamla
vélin var af gerðinni Nohab Polar, sem
skilaði 1540 hestöflum við 825
sn/mín. Nýja vélin er frá Vélum og
Skipum og er Wartsilá NSD af gerðinni
6R32-E, fjórgengis vél með forþjöppu
og eftirkælingu. Hún er 3345 hestöfl
(2460 KW) við 750 sn/mín og brennur
dieselolíu.
Skrúfubúnaðurinn er frá Wártsilá
NSD. Skrúfugírinn er af gerðinni SCV
620-P440 með niðurgíruninni 4,55:1.
Skrúfan er með stillanlegum skurði,
fjórum blöðum og snýst 165 sn/mín.
Þvermál skrúfunnar er 3,0 metrar og
hún er í hring af gerðinni FN 3000/50.
Á niðurfærslugír er aflúttak og kúp-
ling fyrir ásrafala frá Leroy Sommer af
gerðinni LSA52D5/4P. Hann er 1500
kVA og 440/380 V.
Ný ljósavél frá Heklu var sett í skip-
ið. Hún er hún frá Caterpillar af gerð-
inni 3412, 12 strokka V-byggð vél með
utanborðskæli og Caterpillar rafala af
gerðinni SR4B sem er 500 KW og 380
V.
Tvær gamlar ljósavélar voru í skip-
inu. Önnur þeirra var flutt fram í nýtt
vélarúm fram í bakka en hin í land.
Rafkerfi skipsins er 3 x 380V, 50 Hz.
Auk þess er skipið búið landtengingu
um spenni og samfösunarbúnaður er
fyrir rafala.
Stýrisbúnaður var endurnýjaður
með stýri Ulstein og stýrisvél frá Tend-
ÆGTO 43