Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1998, Blaðsíða 10

Ægir - 01.04.1998, Blaðsíða 10
Mikilvægast að vinna að verk- efnum sem varða sameiginlega hagsmuni sjávarútvegsins - segir Pétur Bjarnason, nýkjörinn formaður Fiskifélags íslands, um breytt hlutverkfélagsins Pétnr Bjarnason, framkvœmdastjóri Félags rœkju- og hörpudiskframleið- enda, er nýkjörinn fonnaður stjórnar Fiskifélags íslaitds og sat jafnframt t þeirri nefnd sem mótaði tiliögur til breytinga á starfsemi félagsins, sem nú Itafa verið samþykktar afFiskiþingi. Pétur er bjartsýnn á framtíð félagsins og segir að nauðsynlegt hafi verið að gera breytingar á starfseminni til að skapa félaginu starfsgrundvöll. Framundan sé mikil vintta og ölluni Ijóst að vintta verði hratt og vel að breytingum á starfi Fiskifélags íslands og að þetta starf geti „kostað blóð, svita og tár," eins og hann orðar það. Pétur segist ntjög ánœgður með þœr viðtökur sem breytingarnar hafi fengið og þann hug sem Fiskiþing haft sýnt við afgreiðslu málsins. Ett hvað réð úrslitum iitn að lagt var til að halda starfi Fiskifélags íslands áfrant í breyttri ntynd, fremtir en að leggja félagið niður? „Það er rétt að valkostirnir sem við höfðum voru tveir, þ.e. að hætta starf- seminni eða halda starfi félagsins áfram í breyttri mynd. Spurningin sem þurfti að svara í upphafi var sú hvort þörf væri fyrir sam- eiginlegan vettvang, hvort ein- hver þau verkefni sé að finna fyrir íslenskan sjávarútveg sem best verði unnin á sameiginleg- um vettvangi. Svarið við þeirri spurningu var já þegar menn höfðu sest niður og skoðað mál- ið. Eftir að það svar var fengið fólst okkar vinna í að skapa þann vettvang og þá ímynd sem þarf. Menn geta velt fyrir sér hvaða leið hefði átt að fara en ef menn eru sammála um að sameigin- legur vettvangur þurfi að vera og að hann sé með eðlilegu jafnvægi milli allra greina sjávarútvegsins þá tel ég það mun léttari leið að gera Fiskifélag 10 AOR íslands að þeim vettvangi fremur en leggja félagið niður og stofna nýjan vettvang síðar," segir Pétur. Öllum sem fylgst hafa með starfi Fiskifélags íslands á undanförnum árum hefur verið ljóst að samdráttur væri í verkefnum félagsins. Pétur bendir á að þetta hafi gerst þegar stjórnvöld ákváðu fyrir nokkrum árum að taka félagið út af fjárlögum og nýta það einungis sem verktaka í einstök- um verkefnum. „Pólitíska ákvörðunin fólst í því að draga skil á milli stjóm- sýslulegs hlutverks Fiskifélagsins og þess að vera einkafyrirtæki úti í bæ, ef hægt er að tala þannig um félagið. Þessi ákvörðun olli samdrætti í verk- efnum en það er ljóst að verkefni hafa verið til staðar og eru til staðar sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi. Þetta eru verkefni sem sjávarútvegur- inn í heild þarfnast að meira sé sinnt og ég vonast til að með samstöðu um Fiskifélagið fái það meira af þeim til sín. Og það er að mínu mati líka mik- ilsvert að í gegnum félagið verði til samstaða allra aðila í íslenskum sjávar- útvegi um þau verkefni sem brýnust eru fyrir heildina á hverjum tíma," segir Pétur. Umhverfismálin hvað stærsta verkefnið Eins og komið hefur fram verða nú félagar í Fiskifélaginu helstu hagsmunasamtök í sjávarútvegi á íslandi, þau sem áður mynd- uðu B-deild félagsins. Sú spurn- ing vaknar óneitanlega hvort aðild þeirra að félaginu þýði að þau samtök dragi úr sínu innra starfi. Pétur telur svo ekki verða þar sem ætíð hljóti afmörkuð mál innan hverrar greinar að vinnast á vegum sinna hagsmunasamtaka. „Hins vegar eru mörg önnur verk- „Léttara að gera Fiskifélagið að sameiginlegum vettvangi fremur en að leggja félagið niður og stofna nýjan vettvang síðar."

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.