Ægir - 01.04.1998, Side 12
starf um þetta verkefni við norræna
útflytjendur og rækjuframleiðendur
og raunin er sú að með markvissri
vinnu hefur náðst góður árangur, sér-
staklega miðað við þann kostnað sem
lagt hefur verið í. Þetta er reynsla sem
hægt er að vísa í og ég er ekki í
nokkrum vafa um að fylgið við að
verja fjármunum í sameiginlega þágu
innan íslensks sjávarútvegs á eftir að
aukast á næstu misserum."
Stórt skref
að fela hagmunaaðilum félagið
Breytingarnar sem framundan eru hjá
Fiskifélagi íslands þarf að ráðast í af
krafti, að mati Péturs, og hann segist
vænta þess að jafnt og þétt aukist
skilningurinn á mikilvægi þess vett-
vangs sem Fiskifélagið verði.
„Ég hef fulla trú á því að hags-
munaaðilarnir sem nú standa Fiskifé-
laginu næst verði fljótir að átta sig á
þeim möguleikum sem breytt Fiskifé-
lag getur skapað. Við erum að stíga
stórt skref og auðvitað er það mikið
tilfinningamál þegar fiskifélagsdeild-
irnar, sem hingað til hafa ráðið félag-
inu, samþykkja að gera þessar breyt-
ingar og færa félagið yfir á hendur
hagsmunasamtakanna. Miðað við
hversu stórar ákvarðanir eru þarna á
ferðinni þá verð ég að segja að fram-
gangur málsins hafi verið betri en ég
átti upphaflega von á.
Viðtökurnar sem við fengum voru
af tvennum toga, annars vegar þeir
sem töldu breytingarnar skila betra
Fiskifélagi og svo hinir sem sáu eftir
gamla fyrirkomulaginu og hefðu viljað
halda því áfram en töldu ekki aðra
kosti í stöðunni en þann sem var val-
inn. Þessir aðilar fengu allir ágætan
tíma til að fara yfir tillögurnar og eftir
slíka umhugsun og kynningu voru all-
ar greinar tillagnanna, utan ein, sam-
þykktar samhljóða á Fiskiþingi. Sú
eina sem ekki fékk einróma samþykki
var grein sem fjallar um að fiskideild-
irnar geti starfað áfram. Við sem stóð-
um að tillögunum töldum hins vegar
mikilsvert að halda þessum möguleika
inni áfram, enda ekkert sem útilokar
að fiskideildir geti eflst einhvern tím-
ann á nýjan leik. Fiskifélag íslands er
gamalt félag og hefur oft gengið í
gegnum breytingaskeið á ævinni
þannig að í framtíðinni kann að verða
tekið upp svipað form á félaginu og
verið hefur á undanförnum árum, þó
svo að ákvörðun sé nú tekin um að
hagsmunaaðilar standi félaginu næst.
Það sem við erum að reyna að
skapa, og ég tel forsendu þess að Fiski-
félagið geti starfað sem vettvangur
allra, er að við séum með Fiskiþing og
áherslur í starfsemi félagsins í eðlilegu
jafnvægi við þær greinar sem mynda
íslenskan sjávarútveg. Ég held að okk-
ur hafi tekist að uppfylla þær kröfur
miðað við núverandi aðstæður en síð-
an verða menn líka að vera fljótir að
aðlaga félagið breytingum í sjávarút-
veginum. En breytingar mega ekki
verða breytinganna vegna heldur
verður líka að gæta ákveðinnar íhalds-
semi," segir Pétur.
TÆKNIBÚNAÐUR
RAFMOTORAR
Stærðir: 0,18-900 kW
HRAÐASTÝRINGAR
AFLROFAR
Gerð:
SACE
Stærðir:
125 til
2500 A (In)
Nýjung: ACS-140
Litlar stýringar
Stærðir:
0,37 - 2,2 kW
Breidd: 8cm
Festist beint á
DIN-skinnu
A IIII
nwn
Nánari upplýsingar í síma 5 200 800 og á vefnum:
www.ronning.is & www.abb.com
Æ
JOHAN
RÖNNING
12 Mcm