Ægir - 01.04.1998, Blaðsíða 16
rýmum þannig frjóseminni og kom-
um í veg fyrir að nægileg frjósemi við-
haldi sæmilegum árgöngum undir
sterkum og við getum lent í vítahring,
eins og ég tel að gerst hafi við Ný-
fundnaland," segir Sveinbjörn.
Hann segir að ef litið sé á þorsk-
stofn sem átveru í sjónum þá megi
horfa á hann sem marga stofna vegna
þess að þorskstofninn spanni mjög
mikið svið í vistkerfinu.
Skilyrði fyrir fisk í stofn-
inum séu mjög mismun-
andi en Sveinbjörn telur
að þorskstofninn sjálfur
hafi innbyggð tæki frá
náttúrunnar hendi til að
bregðast við sveiflum.
„Það má eiginlega
segja að þekking okkar
hafi verið byggð á röng-
um forsendum. Við
mænum of mikið á
skammtímavöxt stofna í
heild en horfum framhjá
hringrás lífsins, sem hlýt-
ur að vera frumforsenda
vaxtar. Hoidsköpun
vegna frjósemi er oftast
miklu mikilvægari og
meiri en holdsköpun 3-4
ára nýliða. Það ráð Isem
við höfum notað til stýringar og
verndar byggist á „bíómassa"hugsun
og þeirri reglu að ef eitthvað er of lít-
ið, eða að minnka hættulega, þá skuli
taka minna af því. Sú regla er auðvitað
rétt en hún er hins vegar ekki það ráð
sem menn nota ef þeir kunna betur. Ef
ég tek samanburðardæmi úr landbún-
aðinum þá finnst mér að þessu mætti
líkja við að bændur sem hefðu fjárhús
eða fjós notuðu þá aðferð við slátrun
að skjóta í myrkri en hleyptu bara af
færri skotum ef hjörðin væri orðin
hættulega lítil.
Ég segi einfaldlega að við höfum
notað frumstætt neyðarráð til að
sporna við minnkandi þorskstofni,
þ.e. að taka einfaldlega minna úr
stofninum. Ég er þeirrar skoðunar að
við hefðum getað náð tökum á stofn-
þróuninni á 9. áratugrium miklu hrað-
ar með öðrum aðferðum og það hefði
jafnvel viðhaldið framleiðslu stofns-
ins. Við töpuðum 70 milljón nýliðum
í framleiðslu stofns árlega vegna vit-
lausra viðbragða við góðum árgöngum
sem voru búnir til áður en kvótakerfið
komst á, þ.e. '83 og '84. Árin 1986 til
1988 tel ég að gerð hafi verið regin-
mistök í fiskveiðistjórnun þegar við
vorum að vernda tvo nýliðaárganga
upp á 3-500 þúsund tonn, hvorn um
sig. Við vorum með skyndilokanir til
að vernda þá og allt á fullu við að
reyna að koma í veg fyrir að tekið væri
af þeim af því að okkur langaði til að
sjá þessa árganga vaxa. Líklega hafa
þessir árgangar verið búnir að fullnýta
sitt lífríki, til dæmis hef ég trú á að
vegna þrengsla í sjónum við Austfirði
þá hafi hluti af stofninum þar leitað
austur á bóginn til Færeyja. En þessir
tveir sterku árgangar komu, með sam-
keppni og afráni, í veg fyrir að þriðji
stóri árgangurinn gæti byggst upp og á
sama tíma vorum við búnir að ganga
tölvuvert á þann stofn sem bjó þessa
stóru árganga til," segir Sveinbjörn og
leggur áherslu á þá skoðun sína að
fiskveiðistjórnun eigi ekki síður að
snúast um eðli frá náttúrunnar hendi,
en stofnstærðir og heildarveiðar.
Eigum að veiða
meira af því sem mikið er
„í okkar lokaða kerfi þá erum við að
drepa tonn af stórfiski fyrir það tonn
af smáfiski sem við verndum. Mín til-
finning er sú að við eig-
um að veiða meira af því
sem mikið er af til þess að
geta hlíft því sem lítið er
af. Eftir að hafa skoðað
þessi mál fram og aftur
eru í mínum huga mjög
litlar efasemdir um þetta
atriði. Þó er einn óvissu-
þáttur sem mér finnst
ástæða til að komi fram
og hann er sá að þær
sveiflur sem stofn býr til,
og við höfum alltaf verið
að auka, kunna að vera
vistfræðilega skynsamleg-
ar. Með öðrum orðum að
þorskstofn þurfi að hegða
sér á þennan hátt til að
gefa undirtegundum sín-
um möguleika, þ.e. fá
loðnuna og rækjuna upp
eftir að þorskstofninn er orðinn svona
ráðandi. Þarna liggur eina óvissan í
mínum huga fyrir þessari kenningu
sem ég nefndi.
Ég get ekki séð að það sé tæknilega
erfitt að hætta að vernda smáfisk ef
mælingar sýna okkur að það sé mjög
mikið af honum. Ef ég tek fallegt jóla-
tré sem hliðstæða mynd þá vil ég að
greinarnar séu sniðnar að þeirri mynd
sem við teljum eðlilegast og viljum sjá
og að ein og ein grein fái ekki að vaxa
og varpa skugga á aðrar. Stór árgangur
hindrar vöxt þeirra sem undir honum
eru og barátta þeirra í vistkerfinu verð-
ur hörð. Margt sem sjómenn eru að sjá
þessa dagana hér við land finnst mér
styðja þetta því þeir segja stórfiskinn
vel haldinn og að hann sé að éta smá-
„Get ekki séð," segir Sveinbjöm Jónsson, „að það sé tœknilega erfitt að
hcetta að verncia smáfisk ef mœlingar sýna okkur að það sé mjög mikið
afhonum."
16 AGIR