Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1998, Qupperneq 18

Ægir - 01.04.1998, Qupperneq 18
REVTINGUR Marel með 140 milljóna hagnað Marel hf. skilaði 140 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en óhætt er að segja að árið hafi verið við- burðaríkt í sögu fyrirtækisins því keypt voru öll hlutabréf í danska fyrirtækinu Carnitech og velta sam- stæðunnar þar með tvöfölduð. Áætlað hafði verið að móðurfé- lagið hefði hærri rekstrartekjur á árinu en raun bar vitni. Sala jókst innanlands en framlegð af vöru- sölunni varð lægri en árið á undan. Áætlanir Marels hf. gera ráð fyrir áframhaldandi rekstrarhagnaði á þessu ári en áfram verða Marel og Carnitech rekin sem sjálfstæðar ein- ingar. Mikill undirbúningur fyrir EXPO ‘98 í lok næsta mánaðar hefst heims- sýningin EXPO ‘98 í Lissabon í Portúgal og hefur yfirskriftina „Haf- ið, arfleifð til framtíðar". Óhætt er að fullyrða að fá jafn dýrmæt tæki- færi hafa gefist íslendingum til að beina kastljósi umheimsins að ís- lenskum sjávarútvegi. Áætlanir gera ráð fyrir um 15 milljónum gesta á sýninguna og að Portúgalar og Spánverjar verði meirihluti gesta en einnig komi hátt í þriðjungur annars staðar að. Bás íslendinga verður um 650 fermetrar að stærð en auk þess verð- ur sérstakur þjóðardagur íslendinga þann 27. júní. Athyglisvert rit um fiskveiðar við Kanada / fáum löndum við norðanvert Atl- antshafmun atvinnulífi á 19. og 20. öld hafa svipað jafn mikið til þess sem gerðist hér á landi og á Ný- fundnalandi og Nýja-Skotlandi (Nova Scotia). Sjávanítvegur var undirstöðu- atvinnuvegur, saltfiskur iengi vel mik- ilvœgasta útflutningsvaran og hrun saltfiskmarkaðanna á kreppuárunum olli miklu um það að Nýfundnalend- ingar misstu sjálfstœði sitt og landið varð hluti afKanada árið 1949. Saga fiskveiða við Nýfundnaland nær vitaskuld miklu lengra aftur en til 19. aldar. Fornleifar hafa fundist, sem vitna um veiðar frumbyggjanna fyrir u.þ.b. tíu þúsund árum, og á næst- liðnu sumri voru fimm hundruð ár frá því sæfarinn John Cabot sigldi til Ný- fundnalands. í skýrslu um ferð hans sagði, að við strendur landsins væri fiskgengd svo mikil, að Englendingar þyrftu ekki framar á veiðum við ísland að halda. Sú spá rættist að vísu ekki, en í kjölfar Cabots hófu Evrópumenn miklar fiskveiðar við Nýfundnaland og hafa miðin þar reynst evrópskum út- vegs- og sjómönnum gullkista allt fram á okkar daga, þótt nokkuð hafi dregið úr sókninni þangað vestur á allra síðustu árum. Bókin, sem hér er frá sagt, hefur að geyma átján ritgerðir um sögu fisk- veiða við strendur Nýfundnalands, Nýja-Skotlands og Labrador. Höfundar eru sagnfræðingar, fornleifafræðingar, mannfræðingar, þjóðfræðingar og sjávarlíffræðingar og fjalla þeir urn flest svið í sögu sjávarútvegsins, jafnt Nýjar bækur um sjávarútveg James E. Candow og Carol Corbin (ritstj.): How Deep is the Ocean? Historical Essays on Canada's Atlantic Fishery. University College of Cape Breton Press 1997. 288 bls. veiðamar sjálfar sem líf og starf sjó- manna og Iandverkafólks, fiskveiðar og -verkun og um lífríki hafsins og veiðistjórn og viðkomu fiskstofna. Fyrstu átta ritgerðirnar fjalla um veiðar á þessum slóðum fyrir síðustu aldamót og eru þær flestar um veiðar Evrópumanna. í síðari hlutanum eru níu ritgerðir um sjávarútveg Ný- fundnalendinga á þessari öld og ein að auki um veiðar útlendinga þar vestra eftir aldamótin 1900. í þessum hluta er fjallað ýtarlega um sjávarútveginn í heild og ekki síður dvalist við störf fólks í landi en á sjó. Þetta er einkar athyglisverð og fróð- leg bók og ætti að vera kærkominn öll- um áhugamönnum um fiskveiðisögu og sögu þessara grannlanda okkar. Rit- stjórunum hefur farist verk sitt einkar vel úr hendi og þótt hér sé um rit- gerðasafn að ræða, veitir bókin góða yfirsýn yfir sögu fiskveiða við Ný- fundnaland og Nýja-Skotland frá því um 1500 og fram til okkar daga. - Jón Þ. Þór. i8 mm

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.