Ægir - 01.04.1998, Page 44
fjörd með tveimur öflugum dælu-
stöðvum. Þá var hliðaskrúfa að aftan
skipt út fyrir nýja frá Ulstein sem er
rafknúinn 404 KW af gerðinni 90 TV.
Bógskrúfan er einnig frá Ulstein, gerð
24 T, vökvadrifin og var fyrir í bátn-
um.
Stjórnbúnaður fyrir vél og vélbúnað
er af gerðinni Wichmatic 2.
Vökvakerfi
Vökvakerfi er háþrýst sem vinnur á
210 bara þrýsting. Dælurnar eru allar
rafdrifnar í sér vélarúmi fram í bakka
og fyrrum stakkageymslu. Vökvakerfið
knýr spil, krana, nótablakkir, fiskidæl-
ur og bógskrúfu. Dælurnar eru samtals
11.
Snurpuvinda er upphafleg, en yfir-
farin og með stærri mótorum. Ný og
stærri kraftblökk var sett í skipið.
Kraftblökkin er frá Karmoj. Eina nýja
tækið sem var sett upp í brú er Furuno
straummælir frá Brimrúnu.
Skipið var allt málað með Hempels
málningu frá Slippfélaginu hf.
Fiskifélag íslands þakkar öllum þeim
sem kotnu að við gerð þessarar greinar,
sérstaklega Leifi Ársœlssyni, Siglinga-
stofnun íslands o.fl.
Helstu birgjar og verktakar
sem komu að
endurbótum ísleifs
Skipsteknisk A/S. Hönnun og teikning
Skála Skipasmiðja Smíði og vinna
Vélsmiðjan Héðinn hf. Ulstein hliðaskrúfa
Hekla hf. Caterpillar Ijósavél
Vélar og Skip ehf. Wártsila aðalvél og
skrúfubúnaður
Slippfélagið hf. Hempels skipamálning
WARTSILA A ISLANDI
Óskum útgerð og áhöfn tirhamingju með skipið.
Aðalvél skipsins er frá Wártsilá NSD
og er af gerðinni 6R32-E 3345 hö.
Einnig er niðurfærslugír og>sk‘rúfubúnaður
4 v, frá Wártsilá NSD. 'i~
VÉLAR ogj SKIP ®DqO=
Fiskislóð 137A - 101 Reykjavík - Sími 562 0095 - Fax 562 1095
44 ÆGIR