Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1998, Blaðsíða 30

Ægir - 01.05.1998, Blaðsíða 30
REVTIHGÖirr" Landvinnslan sækir sig hjá Granda Tæplega 48% af afla Granda hf. fóru til landvinnslu hjá fyrirtækinu á síðasta ári. Þróunin hjá fyrirtæknu verið sú að undanförnu að sífellt stærri liluti fer til vinnslu í landi en að santa skapi minnkar útflutningur á ferskum fiski. Svo var komið á síð- asta ári að enginn ferskur fiskur fór frá Granda á erlenda markaði en samkvæmt upplýsingum frá Granda var hlutfallið orðið 25% þegar mest- ur var útflutningur ferskfisks. Sjóvinnsla hefur verið að sækja í sig veðrið hjá Granda og hefur sú sókn verið á kostnað útflutnings á fersku hráefni. Tæp 50% af afla Granda á árinu 1997 voru unnin úti á sjó. Til landvinnslu hjá Granda fóru rúm 17 þúsund tonn í fyrra en heild- arafli Grandatogaranna varð tæp- lega 29.300 tonn á árinu 1997. Aflahæsta skip Granda var togar- inn Asbjörn með 6.678 tonn en síð- an komu Ottó N. Þorláksson með 5.096 tonn, Þerney með 5.051 tonn, Snorri Sturluson með 4.629 tonn, Örfirisey með 4.296 tonn, Jón Bald- vinsson með 3.024 tonn og loks tog- arinn Engey með 519 tonn en skipið fór aðeins eina veiðiferð á árinu. Uthaldsdagar Grandaskipanna voru 25% færri en árið á undan og jókst afli á úthaldsdag um 27%. „íslendingar telja aö nota beri ár liafsins til þess að auka þekkingu og skilning almenn- ings á lífríki sjávar og ástandi hafsins," segir í yfirlýsingu íslendinga vegna hins alþjóðlega árs hafsins. Kiynd: Þnrgeir Baklursson við fiskveiðistjórnunarkerfi sem skilað hefur þeim árangri að sjávarútvegsfyr- irtæki dafna vel án ríkisstyrkja, jafn- framt því sem mikilvægustu fiskistofn- arnir hafa styrkst. Rannsóknir íslend- inga á lífríki sjávar hafa stóraukist og þar með þekkingin sem er ein af for- sendum sjálfbærrar þróunar. Brýnt er að þær þjóðir sem raun- verulegra hagsmuna eiga að gæta komist að samkomulagi, m.a. innan viðkomandi svæðastofnana, um skipt- ingu og skynsamlega nýtingu sameig- inlegra fiskistofna og fiskveiðar utan lögsögu ríkja. Virða ber sjálfsákvörð- unarrétt strandríkja til þess að nýta lif- andi auðlindir sem fyrirfinnast í lög- sögu þeirra enda hefur reynslan sýnt að þeim þjóðum sem eru efnahagslega háðar auðlindunum er best treystandi fyrir þeim. Vissulega eru blikur á lofti varðandi ofnýtingu stofna og mengun sjávar en slíkt má ekki leiða til órökstuddra al- hæfinga og hræðsluáróðurs. Það er nauðsynlegt að benda á vandamálin, en það sem mestu máli skiptir er að finna lausnir á þeim. Við íslendingar höfum, ásamt mörgum öðrum þjóð- um, stigið mikilvæg skref í átt til sjálf- bærrar nýtingar auðlinda hafsins og á ári hafsins er rétt að beina athyglinni að slíkum árangri og þeim lærdómi sem af honum má draga. íslendingar telja að nota beri ár hafsins til þess að auka þekkingu og skilning almennings á lífríki sjávar og ástandi hafsins. Þá þarf að skapa skiln- ing á þeim alþjóðlegu aðgerðum sem nauðsynlegar eru til að tryggja vernd og nýtingu hafsins til frambúðar. Með upplýstri umræðu munu þjóðir heims finna leiðir fyrir mannkyn til að nýta lifandi auðlindir hafsins, líkt og það hefur gert í aldaraðir, en án þess að ganga á þá innistæðu sem hver kyn- slóð hlýtur í arf," segir í yfirlýsinu rík- isstjórnarinnar í tilefni af ári hafsins. 30 AGm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.