Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1998, Blaðsíða 45

Ægir - 01.05.1998, Blaðsíða 45
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI „ Við lítwn ekki á björgunarvörumar á þann hátt aö grceða á þeim heldur er okkur mikið keppikefii að bjóða upp á vandaðar björgunarvörur og öruggar og það er lykilatriði að björgunarbúnaðurinn sé í lagi þegar á honum þarfað halda," segirjón Snaebjörnsson. ur ekki á björgunarvörurnar á þann hátt að græða á þeim heldur er okkur mikið keppikefli að bjóða upp á vand- aðar björgunarvörur og öruggar og það er lykilatriði að björgunarbúnaðurinn sé í lagi þegar á honum þarf að halda," segir Jón. Zodiac slöngubátar með 100 ára sögu Til viðbótar við björgunargallana selur Geiri ehf. bjarghringi, björgunarvesti og loks hina þekktu frönsku slöngu- báta frá Zodiac. Það merki þekkir nærfellt hver einasti sjómaður í flotan- um og ekki að undra því þessir bátar hafa á milli 30 og 40 prósent af heims- markaðnum og hefur franska fyrirtæk- ið framleitt Zodiac bátana í um 100 ár. „Gerðirnar af þessum bátum eru fjölmargar, allt frá litlum vatnabátum og upp í stóra báta til hernaðar. Yfir- leitt erum við að selja hér á landi hefð- bundna litla slöngubáta sem ýmist eru með hefðbundnum gúmmíbotni eða hörðum botni. Harðbotna bátarnir hafa verið að færast í vöxt en þó geta þessir bátar verið óhentugri fyrir marga vegna þess hvernig strendurnar okkar eru, grýttar og erfiðar yfirferðar. Stærstu viðskiptavinir okkar hvað bát- ana varðar eru björgunarsveitirnar vítt og breitt um landið en því næst koma einstaklingar sem nýta bátana til marg- víslegra nota og síðan skipin sjálf. Þar eru bátarnir mikið notaðir í ferðir milli skipa, fluttur á þeim alls kyns varning- ur eða í hvað annað sem leysa þarf. Mér finnst gott til þess að vita að sjó- menn fari mikið í bátana úti á sjó vegna þess að slöngubátarnir eru lög- bundnir sem björgunarbúnaður í skip- um yfir 24 metrum að lengd og sjó- mennirnir fá með þessu góða æfingu sem getur reynst dýrmæt ef á reynir á örlagastundu." Fyrirtæki í örum vexti Eins og áður er á minnst er sala á plast- kössum, slöngum og fleiru fyrir kjöt- og fiskiðnað annað aðal viðfangsefni Geira ehf. Jón segir að í þeirri grein sé mjög greinilegur áhugi á endurvinnan- legum vörum og það segir hann af hinu góða. „Það á einmitt að vera keppikefli hjá fólki að velja vörur sem eru endurvinnanlegar og ég held að sú eftirspurn fari vaxandi," segir hann. Nú eru fimm starfsmenn hjá Geira ehf. en til hliðar við fyrirtækið starfar annað í eign sömu aðila, HG Vending ehf., en það sérhæfir sig í sölu á eld- hústækjum fyrir stór veitingahús og skip. Einmitt um þessar mundir eru fyrirtækin að flytja sig um set í höfuð- borginni, flytja úr húsnæði í Skeifunni og koma starfseminni fyrir í rýmra húsnæði að Bíldshöfða 16. „Já, fyrir- tækin eru stækkandi og nauðsynlegt að auka húsrýmið þannig að eldavél- arnar séu ekki alveg ofan í bátunum," segir Jón og hlær. □ RYGGI Samábyrgð Islands Pósthólf 8320, Lágmúla 9, 128 Reykjavík, sími 568-1400, fax 581-4645 AGIR 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.