Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1998, Side 47

Ægir - 01.05.1998, Side 47
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Gunnlaugur vera afskaplega einfaldar. Þekkingarleysi á skipaiðnaði í Kína, sem og fjarlægð ráði mestu en þeim sem hafi farið til Kína til að kynna sér þarlendar stöðvar hafi hreint og beint fallist hendur yfir því sem þar er að finna. „Fólk hér á landi gerir sér ekki grein fyrir því hvílíkt iðnaðarstórveldi Kína er og gríðarlegur vöxtur í öllu efna- hags- og atvinnulífi þar í landi. Annað mikilsvert atriði í þessu sambandi er af- hendingartími skipa en Kínverjarnir eru mun ábyrgari gagnvart því að standa við sínar áætlanir heldur en Pólverjarnir. Vinnlaunin í Kína eru lág en okkur sýnist framleiðnin engu að siður vera mjög há og það skýrist ein- faldlega af því hversu öguð vinnu- brögð þeirra eru. Við sjáum mjög greinilega að skipulagið á verkefnum er mikið og Kínverjarnir sækja líka í gríð- arlega hefð í skipasmíðum. Annað at- riði sem við tökum eftir í Kína er að þar eru stöðvarnar svo framarlega í tækninni að Pólverjarnir komast ekki með tærnar þar sem Kínverjarnir hafa hælana. Það höfum við staðfest af aðil- um sem hafa skoðað stöðvar í báðum löndunum," segir Gunnlaugur. Viljayfirlýsingar fyrir hendi um smíði skipa í Kína Á síðasta ári fór hópur íslenskra útgerð- ar- og tæknimanna í kynnisferð til Kína á vegum Ice Mac og um síðustu áramót var skrifað undir viljayfirlýs- ingu um smíði tveggja nýrra nótaveiði- skipa sem kæmu í stað Gullbergs VE og Svans RE. Áður hafði Viðskiptastofnun Háskóla íslands gert hagkvæmniút- reikninga á smíði á stórum nótaveiði- skipum eins og teikningar Ráðgarðs- Skipatækni byggja á. Þeir útreikningar voru mjög hagkvæmir en hvort sá undirbúningur mun leiða til smíða er ekki Ijóst enn, að sögn Gunnlaugs. Hann segir að miklu muni skipta um viðskipti á þessu sviði ef Kínverjarnir fáist til að taka notuð veiðiskip upp í verð þeirra nýju. Þurfum að fá ný og öflug nótaveiðiskip „Löggjafinn hefur verið mjög óhag- stæður endurnýjun skipa hérlendis og þar af leiðandi hafa menn verið alltof mikið í endurbyggingu á gömlum skip- um. Það verður að breytast þannig að við fáum öflugri nótaveiðiskip og þá getum við sótt meira fram í veiðum á tegundum á úthafinu, t.d. kolmunna og makríl. Ég vona að á þessu ári náum við að brjóta ísinn og koma af stað smíði á nýju íslensku fiskiskipi í Kína og þá mun koma í ljós að útgerðirnar munu fá þar mjög góð skip fyrir mun minni pening en áður," segir Gunn- laugur. DYNEX tógið er byltingar- kennd afurð nýrrar tækni í plastefnum. Það er framleitt sem 12 þátta fléttað tóg úr óblönduðum DYNEEMA* SK 75 þráðum og húðað með "Duracoat" og er svo létt að það flýtur. DYNEX hefurmeiri slitstyrk en stálvír af sama sverieika, og veguraðeins um 1/6 af þyngd stálvírsins og er ólíkt liprara í meðhöndlun. DYNEX þolir endurtekið álag margfalt betur en stál- vír og endurteknar beygjur svipað eða betur. Tognun við slit er aðeins um 4%. Mjög auðvelt og fljótlegt er að splæsa DYNEX. ’ Skrásett vörumerki DSM yfir ofurþræði úr Polyethylene. HAMPIÐJAN Bíldshöfði 9, 112 Reykjavík Sími: 567 6200 Fax: 567 6209 Notkunarsvið: Gilsar Landfestar Pokalásar Hífingastroffur Höfuðlínur Stög Stórmöskvar Dráttartóg Leysislínur Gjarðir Akkerisfestar Ýmsar línur á nætur. NGÍR 47

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.