Ægir - 01.10.1999, Blaðsíða 5
Pétur Bjarnason, framkvœmdastjóri Fiskifélags íslands:
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Alþjóðasamningar og
umhverfismál
á Fiskiþingi
58. Fiskiþing var haldið á Grand
Hótel í Reykjavík 30. september og 1.
október s.l. Þetta var annað þingið
sem haldið var eftir að skipulagi Fiski-
félagsins var breytt. Þema þingsins var
Sjávaríítvegur: Alþjóðasamningar og wn-
hverfismál. Fimm fyrirlesarar fluttu er-
indi um efnið en síðan var þingfulltrú-
um skipt í þrjá vinnuhópa, sem fjöll-
uðu um það efni sem til umræðu var.
Áður en hafist var handa við sjálft efni
þingsins flutti sjávarútvegsráðherra
Árni M. Mathiesen ávarp. Seinni dag-
inn fóru fram hefðbundin aðalfundar-
störf og umræður um niðurstöðu
vinnuhópa. Eftir þingið voru niður-
stöður vinnuhópa og umræðna dregn-
ar saman og er sú samantekt birt hér í
blaðinu.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra flutti félaginu hlýjar kveðjur og
óskaði félaginu velfarnaðar í framtíð-
inni. Hans vilji stendur til að félagið
verði sá samstarfsvettvangur samtaka í
sjávarútvegi sem að hefur verið stefnt
og hvatti Fiskifélagið til þess að hafa
forgöngu um að útfæra siðareglur
(code of conduct) fyrir íslenskan sjáv-
arútveg. Jafnframt lýsti hann yfir fag-
legum og fjárhagslegum stuðningi
sjávarútvegsráðuneytisins við það
verkefni. Orð sjávarútvegsráðherra
falla vel að þeim hugmyndum sem
settar hafa verið fram um Fiskifélagið
og er óskandi að samstaða náist innan
greinarinnar um þetta mál.
Það var jafnframt ánægjuefni hve
vel fyrirlesarar höfðu undirbúið sín er-
Leiðari
indi, sem voru afar fræðandi fyrir vik-
ið. Davíð Egilson hjá Hollustuvernd
ríkisins reið á vaðið og fjallaði um
mengun hafsins og hvað veldur
henni. Þórir Ibsen hjá utanríkisráðu-
neytinu fjallaði um hvernig alþjóða-
samningar og -samvinna um umhvef-
irsmál verður til, Halldór Þorgeirsson
hjá umhverfisráðuneytinu fjallaði um
þá umhverfissamninga, sem ísland er
aðili að og skipta sjávarútveg miklu
máli og Arnór Halldórsson hjá sjávar-
útvegsráðuneytinu fjallaði um að-
komu ráðuneytisins að alþjóðasamn-
ingum á þessu sviði. Helgi Laxdal hjá
Vélstjórafélagi íslands fjallaði um
hvernig samstarf ráðuneyta og grein-
arinnar eru á þessu sviði og lokaerind-
ið flutti Friðrik Blomsterberg hjá ís-
lenskum sjávarafurðum hf. og fjallaði
um umhverfismerk-
ingar. Þessi erindi
og þær umræður
sem urðu verða að-
gengilegar á heima-
síðu Fiskifélagsins
innan tíðar.
Þá er þess vert að
geta að fimm fyrir-
tæki studdu 58.
Fiskiþing með fjár-
framlagi. Þau eru
I Borgarplast hf.,
I AKO/Plastos ehf.,
* Kælismiðjan Frost
3 ehf., Tölvumyndir
| ehf. og Fjárfestinga-
banki Atvinnulífs-
ins.
Fiskifélag íslands vill þakka sjávar-
útvegsráðherra, fyrirlesurum, stuðn-
ingsaðilum, þingfulltrúum, starfsfólki
félagsins og öðrum, sem komu að
undirbúningi þingsins, fyrir þeirra
hlut. Félagið er þess fullvisst að það
efni sem flutt hefur verið á tveimur
síðustu Fiskiþingum og sú vandaða
umfjöllun sem efnið hefur hlotið hef-
ur haft afar jákvæð áhrif í þjóðfélag-
inu og innan atvinnugreinarinnar.
AGIR 5