Ægir - 01.10.1999, Qupperneq 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, segir góða reynslu hjá
Fœreyingum afþeirri leið að allur fiskur sé verðmyndaður á uppboðsmörkuðum:
„Færeyingar telja
uppboðsleiðina gæfuspor66
T'elja rná nokkuð fyrirséð að verð-
myndunarmál á fiski séu ekki
komin út afborðinu þrátt fyrir
Kvótaþing og Verðlagsstofu skipta-
verðs og að liið gamla þrœtuepli
muni enn verða ásteitingarsteinn í
komandi kjarasamningum. Sœvar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands íslands, vill ekki gefa sér
niðurstöðu fyrirfram í kröfugerð
sjómanna en hann hefur nú í sumar
farið til Fœreyja og skoðað sérstak-
lega verðmyndunarmálin þar á bœ.
Þar segir Sœvar allan fisk fara um
uppboðsmarkaði og skýr skil séu nú á
milli veiða og vinnslu sem gert hafi
að verkum að á stöðum þar sem fisk-
vinnsla hafði lagst afséu vinnslu-
hjólin aftur farin að snúast.
„Við fórum að skoða þessi mál í
Færeyjum í gegnum samstarfsvettvang
verkalýðfélaga í Færeyjum og á íslandi
og þótti fróðle^t að sjá hvernig málum
er háttað hvað verðmyndunina varðar.
Það er ekki langt síðan Færeyingar
voru í mikilli efnahagslegri lægð en í
kjölfar hennar og með vaxandi veiði
hafa þeir stigið það spor að setja sjáv-
araflann á uppboðsmarkaði þannig að
allir hafi jafnan aðgang. Þannig er eru
verðmyndunarmálin einfaldlega kom-
in í lag í Færeyjum og mér fannst sér-
staklega eftirtektarvert að þeir töldu
sig hafa aukið atvinnuna í landi með
breytingunni og gert mögulegt fyrir
staði þar sem lítil eða engin útgerð er
að hefja aftur fiskvinnslu. Ég talaði
bæði við færeyskt fiskverkafólk og sjó-
Scevar Gunnarsson, fortnaður Sjómanna-
sambands íslands.
menn og tók einnig eftir að sáttin um
nýja fyrirkomulagið var mikil. Hún
var sannarlega ekki til staðar fyrir
nokkrum árum þegar sjómannaforyst-
una í Færeyjum og fiskverkafólkið
greindi á um leiðir," sagði Sævar.
Hin hróplega mismunun
Þess er skammt að bíða að hérlendir
sjómenn gefi tóninn í kröfum sínum
fyrir komandi samningagerð og í byrj-
un nóvembermánaðar mun fara fram
formannaráðstefna Sjómannasam-
bands íslands á ísafirði þar sem meg-
inefnið verða kjaramálin. Umræðan
um kröfuna um að allur fiskur verði
verðmyndaður á uppboðsmörkuðum
er augljóslega vel vakandi og þyrfti
ekki að koma á óvart þó hún yrði
grunntónnin í kjarakröfum sjómanna.
„Hér á landi er að okkar mati ekki
frjálst fiskverð nema að nafninu til. í
70-80% tilvika eru útgerðaraðilarnir
og verkendumir sömu aðilar og það
þekkist hvergi í siðmenntuðu um-
hverfi að byggja á fyrirkomulagi af
þessu tagi. Þess utan vil ég leggja
áherslu á að fyrirkomulagið mismunar
verkendum á fiski stórlega. Á sama
tíma og menn geta verið að taka fisk
úr eigin skipum fyrir hálfvirði þá fara
sömu aðilar inn á markaðina og kaupa
sömu fisktegundir fyrir tvöfalt verð í
samkeppni við fiskverkanir sem ekki
hafa eignarhald á kvóta. Þetta tel ég
mismunun fyrir vinnslurnar og fisk-
verkafólkið - alveg hróplega mismun-
un," segir Sævar.
Stofnanir mega hverfa í skiptum
fyrir verömyndun á mörkuöum
í kjöifar síðustu orrahrinu útgerðar-
manna og sjómanna var komið á fót
Kvótaþingi og Verðlagsstofu skipta-
verðs en Sævar segir þessar stofnanir
ekki hafa leyst vandann.
„Menn ræða mikið um að verð á
veiðiheimildum hafi farið upp úr öllu
valdi með tilkomu Kvótaþings. Það er
að mínu mati rangt að verðið hafi
beinlínis breyst vegna þingsins sem
slíks því þær hækkanir sem orðið hafa
eru hliðstæðar hækkunum á hráefnis-
verði á fiskmörkuðunum og afurða-
verði, sérstaklega í þorski. Þetta höfum
við hjá Sjómannasambandinu tekið
ÆGIR 9