Ægir - 01.10.1999, Side 25
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Frábrugðinn öðrum lausfrystum
Hér má sjá hvemig fjölbandafrystirinn frá Skaganum hf. er byggður upp. Frystiböndin
eru hvert yfir öðru og efstu böndin eru svoköllaðar háleiðnireimar þar sem
snöggfrystingin fer fram. Tiiraunir með tœkið hafa gefið góða raun og fiest bendir til að
frystirinn verði kominn í almenna sölu snemma á nœsta ári.
komið hafa um borð í frystitogara að á
vinnsluþilförunum er lítið pláss og
fæst skipin hafa möguleika til að taka
hefðbunda lausfrysta. En ég er viss um
að með aukinni lausfrystingu úti á sjó
þá opnast möguleikar á mun meiri
vinnslu hráefnis af frystitogurum í
landi."
i
Ný gerð reima notuð
við formfrystinguna
Fjölbandafrystirinn byggist þannig
upp að fiskurinn flyst í frystingarferl-
inu milli færibanda en fyrsta stigið er
ný gerð af svokallaðri háleiðnireim,
sem er álreim sem gefur góða
snertifrystingu meðan fiskurinn er
formfrystur. Þetta fyrsta stig er mikils-
verðast í öllum lausfrystum, þ.e. að
fiskurinn skelfrjósi hratt í byrjun fer-
ilsins. Háleiðnireimin er ný tegund af
teflonhúðuðum állista með sléttu yfir-
borði og hentar þannig vel til form-
frystingarinnar en að henni lokinni
gengur fiskurinn niður færibandakerf-
ið í frystinum og honum er loks skilað
Ingólfhr Ámason, tœknifrœðingur hjá
Skaganum hf. „Ég er viss um að með
aukinni lausfrystingu úti á sjó aukast
líkur á að frystitogaramir afli hráefnis
fyrir landvinnsluna."
út úr frystinum fullfrosnum. Afköst
frystisins er um hálft tonn miðað við
fjögurra metra langan frystiklefa en
hægt er að ráða stærð frystisins eftir
því hvernig aðstæður eru í hverju til-
felli. í Fjölbandafrystinum segir Ingólf-
ur að sameinist kostir snertifrystingar
og blástursfrystingar og eru notaðir
þekktir kælimiðlar við frystinguna,
þ.e. ammoníak eða freon. „Þær próf-
anir sem við höfum gert í haust sýna
okkur í raun betri niðurstöðu hvað
formfrystinguna varðar en við
höfðum gert okkur vonir um. Hún
snýst ekki aðeins um hraða og jafna
frystingu á flökunum heldur einnig að
útlit afurðanna sé gott þegar þær
koma út úr frystinum og þannig er
það svo sannarlega," segir Ingólfur.
Flökin 20-25 mínútur í gegn
Hæð frystisins er um 2,1 metrar,
breidd um 3 metrar og lengd um 4
metrar. í hverjum frysti eru tvö form-
frystibönd og það atriði skapar þá
miklu afkastagetu sem raun ber vitni.
þannig er matað á víxl inn á frysti-
böndin. „Við erum að tala um að flök-
in séu 20-25 mínútur á Ieið sinni í
gegnum frystinn en tíminn fer eftir
því hversu þykk flökin eru. þetta tel ég
að sé styttri tími en í hefðbundnum
frystum," segir Ingólfur.
Sótt um einkaleyfi
Nú eru fjölbandafrystirinn í einkaleyf-
isferli, sem og háleiðnireimin. Eins og
áður sagði hefur þessi nýja gerð laus-
frystis verið í þróun og hönnun hjá
tæknimönnum Skagans í tvö ár og
hefur verið unnið í náinni samvinnu
með Haraldi Böðvarssyni hf. Kæli-
smiðjan Frost er samstarfsaðili Skagans
hf. í hönnun Fjölbandafrystisins og
hefur það fyrirtæki með höndum allar
tæknilegar lausnir á frystingunni.
Einnig kom Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins að verkinu sem ráðgefandi
aðili.
Acm 25