Ægir - 01.10.1999, Síða 32
58. Fiskiþing
Fiskifélag íslands
http://fisheries.is
Á Fiskiþingi opnaði Árni
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra,
með formlegum hætti nýja
heimasíðu íslensks sjávarútvegs sem
er að finna undir ofangreindri slóð.
Enn sem komið er er aðeins til
útgáfa af síðunni á ensku en hún er
hugsuð sem ítarleg upplýsingaveita
um íslenskan sjávarútveg, allt frá
hafsbotni til viðskipta með
sjávarafurðir.
Fiskifélagið þátttakandi
í samtökum um endur-
vinnslu og úrgang
I máli Péturs Bjarnasonar, stjórn-
arformanns og framkvæmdastjóra
Fiskifélags íslands kom fram að fél-
agið hefur tekið þátt í stofnun og
starfsemi FENÚR. sent er Fagráð
um endurvinnslu og úrgang. Um er
að ræða ný samtök sem eiga sér
systursamtök í flestum löndum og
hafa það að markmiði að stuðla að
endurbótum á sviði úrgangs af ýmsu
tagi. Pétur sagði það hafa verið mat
stjórnar FÍ að sjávarútvegurinn,
með þá miklu möguleika til
endurvinnslu úrgangs sem frá
honum kemur, ætti fullt erindi í
þetta samstarf, sem fyrst og síðast
hefur að markmiði að lyfta umræðu
um þessi mál á hærra plan og bæta
ástandið.
Friðrík Blomsterberg benti þingfiilltrúum á Fiskiþingi á að neikvœð umrœða um
sjávarafurðir vœri orðin algengari á erlendum mrökuðum en menn gerðu sér almennt
grein fyrir.
Umhverfismerkingar sjávarafurða:
Neytendur áhugasamir í
Bretlandi og Bandaríkjunum
- sagði Friðrik Blomsterbergfrá Islenskum
sjávarafurðum í erindi á Fiskiþingi
Tgriðrik Blomsterberg, starfsmaður
Jrí ÍS, gerði umhverfismerkingar
sjávarafurða að umtalsefni í erindi
sínu á Fiskiþingi. Hann sagði að sam-
Itliða sókn inn á neytendamarkaði
fyrir sjávarafurðir mœttu söluaðil-
arnir kröfuhörðum og oft á tíðum
upplýstum neytendum. Á rödd þeirra
yrði að hlusta.
„Neytendavörumörkuðunum fylgir
aukið þjónustustig og auknar skyldur
við neytendur. Við verðum að virða
þarfir þeirra og sinna þeim vel. Það má
oft sannfæra neytendur um ágæti
þeirrar vöru sem við erum að markaðs-
setja. Oftast taka þeir rökum og enn
sem komið er treysta þeir því sem frá
okkur kemur. En þetta er miserfitt eftir
mörkuðum. Neikvæð umræða um
sjávarafurðir er orðin algengari en
marga grunar og því reynist þessi slag-
ur sífellt erfiðari," sagði Friðrik.
Hann segir að í
Bandaríkjan-
um sé merkj-
anlegur um-
talsverður
stuðningur við
umhverfis-
merkingar
sjávarafurða.
Fram hafi
komið hjá sér-
fræðingum um
neytendavöru-
markaði í Bandaríkjunum að neytend-
ur þar vestra séu tilbúnir til að greiða
hærra verð fyrir vottaða vöru. Varð-
andi Evrópumarkaðinn sagði Friðrik
að á því markaðssvæði skeri Bretar sig
algerlega úr. Mikill áhugi sé á um-
hverfismerkingum í Bretlandi en mun
minni á meginlandi Evrópu.
Friðrik Biomsterberg.
32 MGm
Jóhann Ó. Halldórsson