Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Page 11
9
Ef hallast er að þessu ráði, er það óumflýjanleg af-
leiðing, að tryggja verður landinu nauðsynleg húsaslæði hjá
Alþingishúsinu í tæka tíð, svo að auka megi húsnæðið á
sínutn tíma afarkostalaust. Er hjer eigi aðeins að ræða um
þarfir háskólans, heldur engu siður Alþingis, sem þarfnast
meiri húsakynna, áður langir tímar liða.
Nokkuð hefur þegar verið gert í þessa átt, er hús og
lóð Halldórs heit. Friðrikssonar var keypt. Ef vel er á henni
haldið, fæst allmikið húsrúm hvort lieldur sem er handa
Alþingi eða háskóla. Þó er það víst, að hversu sem lóð
þessi verður hagnýtt, þá nægir hún ekki til Iangframa. Hún
myndi jafnvel reynast allsendis ónóg til þarfa háskólans,
hvað þá heldur bæði Alþingis og hans. Er þetla hverjum
manni auðsætt, sem athugar málið, svo óþarft er að fara
um það íleiri orðum.
Umhverfis Alþingishúsið er svo lóðum hagað, að eigi
er um aðra hentuga lóð að gera, cr bæla mætti við, en lóð
Goodtemplara, sem samkomuhús þeirra er bygt á. Er það
allstór lóð, sem myndi langdrægt nægja lil þess að bæla úr
öllum þörfum um marga áratugi i sambandi við þá lóð,
sem landið á nú. Vill svo vel til, að því er oss hefur verið
skýrt frá, að Templarar fengu lóð þessa upphaflega með
því skilyrði að flylja hús silt burlii, ef Alþingi þyrfti á lóð-
inni að halda.
Oss virðist því brýna nauðsyn bera til að fara þess á
leit við Alþingi, að með öilu sje girt fyrir pað, að lóð þessi
verði jest á nokkurn liátl, sem gœti orðið því til fyrirslöðu
að taka mœtli liana iil ajnola jyrir landið eða háskólann.
Sje þetta vanrækt, hlýtur afleiðingin að verða sú, að byggja
verði sjerstaka háskólabyggingu eða sjerstakt þinghús, áður
mjög langir tímar líða.
í3á virðist það og orðið óhjákvæmilegt, að húsakynni
þau, scm dyravörður luískólans hefur Iiajt, sjeu lögð iil há-
skólans.
2. Húsnœði slúdenta. Engum getur dulist það, að stúd-
entar, sem stunda hjer nám, eru að ýmsu leyli ólíkt ver seltir