Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Blaðsíða 18
16
slíkt embætli, telur það dr. Guðm. Finnbogason ágæt-
lega lil þess fallinn að lakast það á hendur«.
Ályktun um húsaleigustyrk, Háskólaráðið ályktaði
á fundi sinum 13. janúar að gera það að reglu framvegis, að
þeir stúdentar, er próf taka í lok fyrra misseris, fái ekki
nema hálfan húsaleigustyrk.
Kensluskyldu Ijett af. Um mánaðamótin apríl og
maí 1917 varð háskólinn eldsneytislaus. Með þvi að ekki
var þá liægt að fá kokes, sem álitið var það eina eldsneyti,
sem hægt væri að nota i hitavjelinni, fjekk háskólaráðið
kensluskyldu Ijett af háskólanum þann mánuð, sem eftir var
fram að prófum, og hverri deild og kennurum lagt i sjálfs-
vald, hvernig kenslu yrði haldið uppi.
Siðar sendi háskólaráðið stjórnarráðinu þá málaleitun,
að reynt yrði að tryggja háskólanum kokes í tæka tíð til
upphilunar næsta vetur, svo að kensla gæti farið reglulega
fram.
A þessu varð þó misbreslur. Iíokes reyndist ófáanlegt
og við sjálft lá, að háskólinn yrði að fá setta ofna í kenslu-
stofur og takmarka kenslu að mun. En í lok háskóla-
ársins (sept. 1917) voru gerðar tilraunir til að hrenna kol-
um í hitavjelinni, og fundin aðferð, sem virtist gefa góðar
vonir.
Skipulagsskrár. Eftir tillögum frá guðfræðisdeild
samþykti háskólaráðið 24. marz 1917 skipulagsskrá fyrir
Prestaskólasjóðinn (sjá fskj. 1).
Um leið var samþykt að prenta í árhókinni gjafabrjef
Halldórs heif. Andrjessonar að sjóði þeim, er guðfræðisdeild-
in ræður yfir og her nafn hans (sjá fskj. II). Samþykt var
að úthlutun st)Trks úr þessum sjóði færi fram um leið og
styrkveitingar úr Prestaskólasjóðnum.