Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Blaðsíða 14
12
notuni og gott stúdentaheimili, en mikilsverð væri hún þó
fyrir alt fjelagslíf þeirra og nokkur sparnaður, er þeir gætu
átt þar kost ódýrari smávegis veitinga (kafíi, smjör og' brauð),
en þeir fá á veitingahúsum.
Ef ekki verður talið fært að ráðast i neinar nýbygging-
ar, viljum vjer fara þess á leit, að stúdentar fái sem besi al-
livarf í Alþingishúsinu, sem kostur er á. Verður þá sjerstak-
lega að tala um afnot af Kringlu, sem annars stendur auð
milli þinga. Kom það í Ijós þennan eina vetur, sem stúd-
cntar liöfðu þar athvarf, að þeir fóru vel með húsið, sem
var skoðað á undan og ettir. Svo myndi og verða framvegis.
Ef hentara þælli, gæti og komið til tals að leyfa þeim að
hafa lestrarstofu í lestrarsal Alþingis. Hvort heldursem væri,
ætli það að vera landinu kostnaðar og meinfangalítið. Hitt
verðum vjer að telja algerlega óviðunandi, að stúdentar hafi
hvergi athvarf, hvorki fyrir neitt fjelagslif og heldur ekki einu
sinni i fritímum milli kenslustunda. Þótt slíkt hafi tiðkast fyr
crlendis, þá er nú öldin önnur, enda vafalaust, að það hefur
ill áhrif á allan andlegan þroska og menningu þeirra.
Vjer leyfum oss þvi, virðingarfylst, að fara þess á leit
við Alþingi:
1. Að háskólanum sjeu, meðan ekki verður ráðist í
neinar nýbyggingar, legfð afnol af Iíringlii eða leslrarsal Al-
þingis milli þinga handa stúdentum.
2. Að húsakynnum þeim, sem dyravörður hefur haft til
afnota, sje bætt við húsnæði háskólans.
3. Að lóð sú, sem templarar ráða nú gfir, sje tnjgð
landinu til afnota.
4. Að svo fljólt sem ástæður leyfa, sje komið upp stúd-
entaheimili með svipuðu fyrirkomulagi og uppdræltir þeir
sýna, sem vjer látum fylgja.
5. Að svo framarlega sem nýtt hús verður bygt á lóð
Halldórs heit. Friðrikssonar, áður en tiltök .þykja til að
byggja stúdentaheimili, þá verði háskólanum œtlaðar tvœr
hœðir af húsi því lil afnota á norðurhlið þess.