Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Blaðsíða 35
33
c) Leiðbeindi yngri nemendum síðara misserið í
greiningu líííæra á líkum.
2) Heilbrigðisfrœði.
Fór yfir heilbrigðisfræði Gáriners í 2 stundum á
viku bæði misserin.
3. Yfirselufrœði.
Fór með viðtali og yfirheyrslu yfir kenslubók próf.
Kr. Brandts í 2 stundum á viku. Síðara misserið æfði
bann stúdenta verklega í fæðingarhjálp á konulíkani.
Aukakennari Jón Hj. Sigurðsson, hjeraðslæknir:
iAjfœkn isfrœði.
a) Fór með yfirheyrsiu og viðtali yfir farsóilir og
sjúkdóma í lungum, þörmum, heila og mœnu, með eldri
nemendum í 4 stundum á viku bæði misserin.
b) Yeilti ókeypis lækningu í lækningastofu báskól-
ans 2 slundir á viku og æfði þar eldri nemendur í rann-
sókn sjúklinga.
c) Veitti eldri nemendum tilsögn í Igflœknisviljun í
St. Josephsspítala í einni stund daglega, þegar verkefni
var til.
d) Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir helstu atriði
sjúkdómsrannsókna með yngri nemendum, í einni stund
á viku. Notuð var við kensluna: Seifert & Miiller: Ta-
schenbuch der medizin.-klin. Diagnostik.
Aukakennari Sœmundur Bjarnhjeðinsson prófessor:
1. Fór með viðtali og yfirheyrslu í 3 stundum á viku bæði
misserin yfir Igfjajrœði með eldri nemendum. Við kensl-
una var notuð: Poulsson: Lehrbuch der Pharmakologie.
2. Leiðbeindi eldri nemendum í rannsókn Iioldsveikissjúkl-
inga í Laugarnesspítala, 1 stund á viku síðara misserið.
Settur dócent Stefán Jónsson:
1. Fór síðast á kensluárinu yfir kafla í almennri sjúkdóma-
frœði (æxli og nokkuð af bólgum).
5