Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1917, Side 13
11
stæði en Templaralóðina, sem væri fyrir margra hluta sakir
ágætlega fallin til sliks, ef háskólanum er ætlað húsnæði til
langframa í Alþingishúsinu.
Til þess að skýra málið betur hefur Guðjón Samúelsson,
byggingafræðingur, sýnt oss þá velvild að gera uppdrátt af
slíku stúdentaheimili, er stæði á Templaralóðinni. Má af
honum sjá stærð og alla tilhögun slíkrar byggingar. Er auk
þess markað fyrir allstóru húsi, sem Alþingi eða landsstjórn
gætu hagnýtt sjer.
Eftir því sem nú horfir í svipinn með b}'ggingarefni o. fl.
höfum vjer álitið það þýðingarlaust að láta gera kostnaðaráætl-
un, en viljum aðeins benda á, að húsaleigustyrkur sá, sem Al-
þingi veitir nú og fjelli að sjálfsögðu niður, er stúdentaheim-
ili yrði bygt, (4000 kr. á ári) svarar til 80,000 kr. eitt skifti
fyrir öll, ef vexlir eru taldir 5°/o, að ef til vill gæli Háskóla-
sjóður (sem öll gjöld frá stúdentum renna i) lagt til nokk-
urn skerf, að gjafir eða önnur fjársöfnun myndi einnig geta
orðið nokkur styrkur og auk þess engin frágangssök, þótt
stúdentar gyldu nokkura húsaleigu. Að öllu athuguðu virðist
ekki örvænt um það, að hrinda mætti þessu máli i fram-
kvæmd, áður langt um líður. í svipinn riður mest á þvi, að
lóðin sje trygð svo sem fyr er tekið fram.
En áður en þetta kæmist i framkvæmd, gæti komið til
mála að byggja nýtt liús á lóð Halldórs heit. Friðrikssonar.
Er hús það, sem á lóðinni stendur, lítt nothæft og verður
ekki lengi dregið að reisa það á ný eða rífa. Ef til þessa
kæmi, áður en kostur væri á að byggja stúdentaheimili,
væri það mikil bót til bráðabirgða, ef háskólinn fengi þar
aukið liúsrúm í þarfir stúdenta. Sem stendur hefur hann nú
neðri hæð hússins til afnota fyrir ókeypis lækningar. Vjer
sendum uppdrátt af n}Tju húsi, viðauka við Alþingishúsið,
sem s}rnir hversu lóð þessa mætti nota í þarfir Alþingis og
háskóla. Er ætlast til að mestalt húsið gangi til þarfa Al-
þingis, en tvær hæðir norðan til ætlaðar háskólanum og
stúdentum (herbergjaskipun aðeins sýnd í þeim hluta).
Að sjálfsögðu gæti slík endurbót ekki komið að svipuðum