Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1918, Page 34

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1918, Page 34
32 úr Háskólaljóðunum. En síðan ávarpaði rektor háskólans samkomuna með ræðu þeirri, sem hjer fer á eftir: J) Göfuga samkoma! Fyrir rjettum sjö árum — á aldarafmæli Jóns Sigurðsson- ar — var háskóli vor settur á stofn í sölum þessum undir forustu þess manns, sem varð fyrstur rektor hans og vjer nú ætlum að kveðja hjer í dag. Heilsa hans er farin að bila og ellin kallar að; sjer liann sjer því ekki lengur fært að rækja starf það, sem honum var falið hjer við háskólann, svo sem honum sjálfum mundi lika, og hefir því nú beðið um lausn í náð frá kennarastarfi sínu. Ekki er nú heldur jafn-bjarl yfir hugum vorum og á þessari sólbjörtu sumarstund, er jeg nefndi, og ber margt til þess: ástandið í heiminum, örlög landa og lýða, og sá vandi og sú tvisýna, sem vor eigin þjóð er í á þessum alvöru- þrungnu tímum. Auk þess erum vjer nú hjer saman komn- ir til þess að kveðja einn vorn mætasta mann, er hann gengur frá starfi sínu, bilaður að heilsu og kröftum. Er oss þetta sjerstakt hrygðarefni og það á fleiri lund en eina. Því að auk þess sem hann bar höfuð og herðar yfir oss flesta samverkamenn sína og var því skóla vorum til hróðurs og sæmdar, var honum falið það starf, sem vjer teljum oss dýrmætast og hjartfólgnast, en það var það að hlúa að tungu vorri, bókmentum og menningarsögu. Ilonum bar að sá fræi þjóðrækninnar í hjörtu hinna ungu; hann átti að glæða ástina á vorri dýru tungu; og hann átti að bregða upp fyrir oss skuggsjá menningar vorrar að fornu og nýju, svo að vjer gætum greint þar kosli vora og kannast við vora þjóðarlesti. En nú er hann á förum. Nú er hann að 1) Ræða þessi, sera á að vera eins konar greinargerð fyrir því, hvers vegna heimspekisdeild ályktaði að gera próf. B. M. Ó. að lieið- ursdoktor, er tekin saman i samráði við kennara deildarinnar, og á einkum sögukennarinn, dócent Jón J. Aðils, mestan og bestan þátt í henni.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.