Árbók Háskóla Íslands

Ukioqatigiit

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1923, Qupperneq 6

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1923, Qupperneq 6
4 III. Gerðir háskólaráðsins. Kosning varaforseta og ritara. Á fundi 4. nóvember 1922 kaus háskólaráðið prófessor Einar Arnórsson varaforseta sinn og prófessor, dr. phil. Pál Eggert Ólason ritara. Tillögur um fjármál. Út af beiðni stjórnarráðsins um tillögur háskólaráðsins um breytingar á fjárlögum, er nauð- syn þælti, að gerðar væru á fjárveitingum til háskólans, samþykti háskólaráðið þessar tillögur: a) Við staflið b. 14. gr. B. I. fjárlaganna: Að gefnu tilefni mælir háskólaráðið með því, að kennarinn í sögu og málfræði islenskrar tungu beri að öllu leyti sama úr být- um sem væri hann skipaður dócent frá 1. janúar 1920. b) Við staflið c sömu greinar: Liðurinn orðist svo: 1. Námsstyrkur 24000 kr. 2. Húsaleigustyrkur 12000 kr. Tölurnar i athugasemdinni breytist svo, að í stað 175 kr. komi 300 kr. og í stað 560 kr. komi 900 kr. c) Við staflið e sömu greinar var samþykt, eftir tillögum læknadeildar, að fara fram á 500 kr. til umbúðakaupa o. fl. við ókeypis lækning háskólans. Styrkur til stúdentaráðsins. Samþykt var að veita stúdentaráðinu 500 króna styrk, eins og árið áður, og taka það fje af «öðrum gjöldum» háskólans. Fullveldisdagurinn. Út af málaleitun stúdentaráðsins um að háskólaráðið taki höndum saman við það um að gera fullveldisdaginn að sjerstökum hátiðisdegi við háskólann, fól háskólaráðið, sem ekki hafði á móti þessu, rektor að ræða málið við stúdentaráðið. Minningarsjóður prófessors Guðmundar Magnús- sonar og konu hans Katrínar Skúladóttur. Á fundi

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.