Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1923, Blaðsíða 26
24
himnuna? Hvers konar breytingum veldur hún þar?
Ilver eru einkenni veikinnar? Hvernig má þekkja hana
frá öðrum sjúkdómum? Hvernig er meðferðin?
III. í rjettarlæknisfræði:
Hvers konar sjálfsmorð eru algengust og hvernig getur
rjettarlæknirinn leitt líkur að því, að um sjálfsmorð sé
að ræða?
Prófdómendur voru hinir sömu og áður, þeir Matthías
læknir Einarsson og Sigurður Magnússon yfirlæknir við
heilsuhælið á Vífilsstöðum.
Lagadeildin.
Embœtlispróf í lögfrœði.
í lok fyrra misseris gengu 2 stúdentar undir emhættispróf
i lögfræði. Skriflega prófið fór fram dagana 30. janúar til 3.
febrúar, en prófinu lauk 13. febrúar.
Verkefni við skriflega prófið voru:
I. í I. borgararjetti:
Lýsið aðaldráttum löggjafarinnár um stjórn á fje ófjár-
ráðra.
II. 1 II. borgararjetti:
Getur maður, er hlut fær til eignar frá þeim manni, sem
eigi er bær um að ráðstafa hlutnum, orðið eigandi að
hlutnum við þá ráðstöfun, og með hvaða skilyrðum?
III. í refsirjetti:
Hvaða athafnir eru refsiverðar eftir 212. gr. almennra
hegningarlaga?
IV. f stjórnlagafræði:
Hvað eru fjárlög og að hve miklu leyti gilda um þau
aðrar reglur en lög alment?
V. 1 rjettarfari:
Að hverju leyti er farið með sjódómsmál öðruvísi en
almenn einkamál í hjeraði?
í lok síðara misseris (14.—16. júni) luku 6 stúdentar em-
bættisprófi í lögfræði.