Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1923, Side 7
5
4. nóvember 1922 barst háskólaráðinu brjef frá Guðmundi
prófessor Magnússyni, dags. 3. s. m., þar sem hann fyrir sina
hönd og konu sinnar býðst til þess að afhenda Háskóla ís-
lands nú þegar tit eignar:
1) Veðdeildarbrjef Landsbankans að nafnverði kr. 40000.00
2) Skuldabrjef Reykjavíkurbæjar 1922 (6l/í°/°) — 10000.00
Samtals kr. 50000.00
með svofeldum skilyrðum:
1) Að gefandinn og kona hans njóti vaxtanna af brjefum
þessum, meðan þau lifa, og þeim verðbrjefum, sem keypt
verða í þeirra stað, og skal jafnan kaupa veðdeildarbrjef
i stað útdreginna brjefa.
2) Að upphæðinni skuli varið til að mynda minningarsjóð,
er kendur sje við nöfn þeirra hjóna. Vöxtum hans skal,
þegar hann er orðinn kr. 100000.00, verja
a) til að styrkja íslenska kandidata i iæknisfræði eða is-
lenska lækna til undirbúnings undir kennaraembætti
í læknisfræði við læknadeildina,
b) til að styrkja og efla íslenska, vísindalega starfsemi í
læknisfræði.
Er jafnframt vísað til erfðaskrár þeirra hjóna og væntan-
legra fyrirmæla í skipulagsskrá sjóðsins.
Samþykti háskólaráðið að taka gjöf þessari með þökkum.
Var rektor falið að þakka þeim hjónum gjöfina brjeflega
og ennfremur ákvéðið að háskólaráðið færi alt á fund þeirra
og tjáði þeim þakkir sinar.
Leikfimi stúdenta. Háskólaráðið samþykti að mæla með
þvi við stjórnarráðið, að nauðsynlegt fje verði veitt og aðrar
ráðstafanir gerðar til þess að veita stúdentum háskólans
kost á ókeypis leikfimi og böðum.
Skrásetning erlends stúdents. Háskólaráðið veitti
Heinrich Schuen, þýskum slúdent, leyfi til þess að verða
skrásettur við Háskóla íslands sem nemandi i íslenskum
fræðum.