Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 14
12
7. Dósentsembætti í sögu. Hinn 12. jan. 1945 var dr. Jón
Jóhcinnesson settur frá 1. jan. til þess að gegna dósents-
embætti í sögu. Auk hins setta dósents sótti próf. Guð-
brandur Jónsson um embættið. í nefnd samkv. 9. gr.
háskólareglugerðarinnar voru skipaðir próf. dr. Þorkell
Jóhannesson, formaður (nefndur af heimspekisdeild),
dr. phil. Páll Eggert Ólason (tilnefndur af háskólaráði)
og Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður (af hálfu
menntamálaráðherra). Hinn 25. apríl var dr. Jón Jó-
hannesson skipaður dósent í sögu frá 1. maí að telja.
8. Prófessorsembætti i verkfræði. Um prófessorsembættin
í verkfræði sóttu Finnbogi R. Þorvaldsson verkfræðing-
ur, dr. Leifur Ásgeirsson og dr. Trausti Einarsson. í
nefnd samkv. 9. gr. háskólareglugerðarinnar voru skip-
aðir: Bolli Thoroddsen hæjarverkfræðingur, formaður
(af hálfu kennaranna í verkfræði), Steingrímur Jóns-
son rafmagnsstjóri og cand. act. Brgnjólfur Stefánsson
(nefndir af háskólaráði), cand. polyt. Árni Pálsson og
mag. scient. Steinþór Sigurðsson (af hálfu menntamála-
ráðherra). Hinn 29. júní voru ofangreindir 3 umsækj-
endur skipaðir þrófessorar í verkfræði frá 1. júlí 1945
að telja.
9. Háskólabókavörður. Hinn 5. marz 1945 var dr. phil.
Björn Sigfússon settur til þess að gegna háskólabóka-
varðaremhættinu frá 1. sama mán., er dr. Einar ÓI.
Sveinsson hafði verið setlur prófessor í hókmenntasögu.
Hinn 4. júní 1945 var dr. Birni veitt embættið frá 1.
sama mán. að telja.
íslenzk orðabók. Samþykkt var að ráða cand. mag. Árna
Kristjánsson í 8 mánuði veturinn 1944—45 til þess að vinna
að undirhúningi íslenzkrar orðahókar eftir fyrirmælum
kennaranna í islenzkum fræðum.
Kennsla. Samkvæmt ósk nokkurra stúdenta og að fengnu
leyfi menntamálaráðuneytisins var tekin upp kennsla i