Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 92

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 92
90 að fela þeim Sigurði Bjarnasyni alþingismanni frá Vigur, Ólafi S. Björnssyni, sendiráðsritara í London, og Stefáni Júliussyni, yfir- kennara i Hafnarfirði, og fara með umboð ísienzks æskulýðs á þingi þessu. Af ófyrirsjáanlegum ástæðum varð að fresta þinginu til mán- aðamóta okt.—nóv. Sökum þessarar frestunar sá enginn áðurnefndra fulltrúa sér fært að mæta, og var þá hafizt handa um val nýrra manna. Urðu að því sinni fyrir valinu þeir Pétur Eggerz, sendiráðs- ritari í London, Kristinn Gunnarsson viðskiptafræðingur, sem staddur er í London, og Björn Th. Björnsson listfræðinemi, sem einnig er staddur i London. Mun æskulýðsþing þetta nú standa yfir þessa dagana. Alþjóðasli'identamót i Prag. Þá barst ráðinu á s.l. sumri bréf frá Sambandi tékkneskra stúdenta, þar sem íslenzkum stúdentum er boðin þátttaka í alþjóðamóti stúdenta, sem haldið verður í Prag þ. 17. nóv. n. k. Samþykkti ráðið, að eðlilegast væri að fela hinu nýstofnaða Landssambandi íslenzkra stúdenta allar frekari aðgerðir í málinu. Hafa ráðinu nú borizt upplýsingar um, að sambandið hafi gert ráð- stafanir til að senda fulltrúa á mótið. Sameignarsjóður íslendinga í Danmörku. Samkvæmt tilmælum frá stjórn Sameignarsjóðs íslendinga í Danmörku skipaði ráðið for- mann sinn til að vera heiðursráðunaut sjóðsins og lofaði að veita sjóðnum þann stuðning, sem í ])ess valdi stæði. Samskipti við stádenta á Norðurlöndum. Stúdentaráðið sendi i maímánuði s. 1. Studenterforeningen i Kaupmannahöfn hamingju- óskir í tilefni af endurheimtu frelsi dönsku þjóðarinnar. Þá sendi ráðið stúdentaráðinu við Oslóarháskóla kveðjur og heillaóskir í til- efni þess, að háskólinn var opnaður aftur eftir fimm ára lokun þ. 1. septemher s. 1. Þann 17. júni bárust ráðinu hamingjuóskir í tilefni dagsins frá stúdentaráðinu við Iielsingforsháskóla og Sambandi sænskra stú- denta. Þakkaði ráðið þessar vinsamlegu kveðjur. í haust barst ráðinu enn fremur skeyti frá Lunds Studentkár, en i skeyti þessu er ráðinu boðið að senda fulltrúa á Tegnérfesten og Halsningsgillet, sem haldið var i Lundi þ. ö. október s. 1. Ákveðið var að fela Einari Braga Sigurðssyni náttúrufræðinema, en hann var á förum til Lundar um þessar mundir, að mæta við hátiðahöldin fyrir hönd ráðsins. Loks hefur ráðið staðið í bréfaskriftum við stúdentaráðið við háskólann í Helsingfors. Hefur því verið boðið að senda fulltrúa á hátiðahöldin, sem fram eiga að fara i Helsingfors þ. 26. þ. m. í til- efni 75 ára afmælis Gamla Studentshuset þar í borg. Hefur ráðið gert ráðstafanir til, að fulltrúi stúdenta geti mætt á þessari hátíð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.