Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 108
103
Til úrlausnar verklegra viðfangsefna eru ætlaðar 12 vikur.
5. Vatnsorkuver. Vatnsrennsli, miðlun og ákvörðun á stærð virkj-
unar. Heildartilhögun virkjunar. Stíflur og rásir þeirra. Lokur og
búnaður þeirra. Aðrennslisþrær og búnaður þeirra. Skurðir og
þrýstivatnsrásir. Helztu tegundir vatnsvéla. Tilhögun orkuvers og
frárennslisskurða.
Fjöldi kennslustunda um 75.
Enn fremur 2 verkleg viðfangsefni:
1. Heildartilhögun virkjunar við ákveðnar aðstæður, tilhögun stíflu
og gerð hennar í höfuðdráttum; þrýstivatnsrás eða aðrennslis-
skurður, útreikningur á afköstum vatnsvélar, tilhögun orkuvers
og frárennslisskurðs.
2. Fullnaðaruppdrættir af hluta af vatnsrennslisbúnaði stiflunnar
i verkefni 1.
Til úrlausnar framangreindra viðfangsefna eru ætlaðar 6 vikur.
6. Veituverkfræði: Vatnsveitur, helztu aðferðir til hreinsunar
drykkjarvatns. Ilolræsi og hreinsunarstöðvar. Stutt lýsing á gaskerf-
um og annarri tæknilegri starfrækslu í bæjum. Miðstöðvarhitun og
loftræsting. Einangrun. Virkjun jarðhita; jarðeðlisfræðileg virkjnnar-
skilyrði. Hitaveitukerfi.
Kennslustundir um 75.
Enn fremur 2 verkleg viðfangsefni:
1. Miðstöðvarkcrfi i ibúðarhús (meðalstærð).
2. Vatnsæða og holræsakerfi í bæjarhluta (t. d. 3—4 götur) og
fullnaðaruppdrættir að vatns-, holræsa- eða hitalögn í götu.
Til úrlausnar framangreindra verklegra viðfangsefna eru ætlaðar
5 vikur.
7. Vega- og gatnagerð. Nútima bílaumferð og kröfur hennar til
vega og gatna. Helztu atriði um legu vegarins með tilliti til lands-
lags og snjóalaga. Langsnið (trace), grunnmynd og þvermyndir vega
og gatna. Val á fyllingarefni og áætlun um magn þess og flutning.
Slitlag vegarins og helztu efni í það. Steyptir vegir. Helztu vega-
vinnuvélar.
Mjög stutt lýsing járnbrauta. Stutt yfirlit um helztu atriði flug-
valla.
Skipulag bæja í aðalatriðum.
Kennslustundir um 75.
Enn fremur 3 verkleg viðfangsefni.
1. Þvermynd vegar með efnisskrá.
2. Lagning vegar, sýnd i langsniði og þversniði.
3. Gatnamót.