Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 113
111
Viðbótarákvœði.
Fyrir stúdenta, er luku fyrra hluta prófi vorið 1943, er haldið uppi
sérstakri kennslu við deildina háskólaárið 1945—46 og haustmisserið
1946 í framhaldi af undanfarinni kennslu.
Kennsla í síðara hluta greinum miðast við próf sem hér segir:
Miðpróf sé tekið í janúar 1946 og aðalpróf i mai—júni 1946.
Kennslu er haldið uppi við deildina vormisserið 1946 í náms-
greinum þeim, er stúdentar velja prófverkefni úr, ef þess gerist þörf.
Stúdentum þessum er gefinn kostur á að ganga undir miðpróf
í janúar 1946 eða í maí—júni 1946. Þeim er og gefinn kostur á að
ganga undir aðalpróf í maí—júní 1946, í janúar 1947, eða í maí—
júni s. á. Um endurtekningu prófa gilda ákvæði reglugerðarinnar.
Stúdentar segi sig til miðprófs eigi síðar en 19. des. 1945, 15.
apríl 1946 eða 19. des. 1946, og til aðalprófs eigi síðar en 1. maí
eða 19. desember árin 1946 oð 1947.
Aður en stúdent segir sig til miðprófs eða aðalprófs skal hann
hafa skilað öllum verklegum viðfangsefnum, sem honum er gert að
leysa af hendi undir síðara liluta próf.
Stúdentar þessir skulu segja til um, í hvaða námsgrein þeir velja
prófverkefni eigi síðar en 1. okt. 1945.
Þeir stúdentar, sem ganga ætla undir aðalpróf í maí—júní 1946,
fá prófverkefni 1. febrúar s. á., og er ætlazt til að þeir vinni að þvi
undir handleiðslu kennara til 1. apríl.
Að afloknu aðalprófi getur stúdentinn unnið áfram að prófverk-
efninu, og skal hann hafa skilað þvi eigi síðar en 1. nóv. 1946. Próf-
skírteini fær liann afhent, er hann skilar prófverkefni með fullnægj-
andi vitnisburði.
Hafi stúdent ekki lokið miðprófi i janúar 1946, en ætli að ganga
upp til aðalprófs í maí—júní 1946, getur hann fengið prófverkefni
1. fehrúar, enda hafi hann þá skilað öllum verklegum viðfangsefnum.
Gilda þá sömu ákvæði um prófverkefnið og fyrr segir. Prófskírteini
fær stúdentinn þá, er hann á fullnægjandi liátt hefur iokið miðprófi
í janúar 1947.
Segi stúdent sig hins vegar ekki til aðalprófs i maí—júní 1946,
gilda viðkomandi tímaákvæði reglugerðarinnar um próf og próf-
verkefni.
Stúdentar þeir, er lokið hafa fyrra hluta prófi vorið 1945 eða fyrr
og viðbótarákvæði þessi ná ekki til, fylgja námstilhögun þeirri, er
hér er greind að framan. Þó skulu þeir, samtímis þvi að þeir ljúka
miðprófi, ljúka prófi í landmælingu og húsagerð. Skal námi og prófun
i prófgreinum þessum haga á sama hátt og gert er við fyrra liluta