Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 11

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 11
reyndi hann að kinka til hennar hæversklega kolli, en þegar hún virti hann ekki viðlits, studdi hann höndunum á bekkinn, teygði höfuðið fram og beygði það á ýktan hátt, svo kveðja hans færi áreiðanlega ekki framhjá henni. Þegar hún hélt áfram að stara í glerið tók hann að skurka til stál- bökkunum í borðinu. Hann þóttist vera að lagfæra þá sem höfðu hróflast þegar af þeim var tekið, ýtti þeim til og frá og hagræddi uns hann þreif í bakkann með svínshöfðinu. Hann hreyfði hann þó ekki til, en hélt þétt um brúnina og mændi upp til hennar með hótun í svipnum. Afgreiðslukon- urnar hrópuðu á hann og sögðu honum að sleppa en hann sleppti ekki þó þær stöppuðu korktöflunum í harðan steininn og æptu að honum. Skyndilega tóku þær að berja í glerið með flötum lófum, hömruðu taktfast í borðið svo buldi í því en hnífamir sem legið höfðu í snyrtilegri röð á bekknum hrundu niður á gólf. Kjötmeistarinn sleppti bakkanum með semingi, beygði sig eftir hnífunum og tók að raða þeim aftur upp á borðið, saug endann á yfirvaraskegginu eins og hann gerði oft þegar hann var hugsi. Konan hafði lyft hendinni upp af vagnbríkinni og sett hana undir hök- una. Hún virtist ósnortin af hamaganginum, var hætt að stara niður í glerið og í staðinn ntændi hún beint fram fyrir sig. Ég hafði staðið við filmu- vélina og pakkað kótelettum. Afgreiðslukonurnar báðu mig um að saga niður lambahrygg og ég pakkaði bitunum í litlar plastöskjur sem ég strengdi yfir gagnsæja filmuna. Ég hafði orðið var við undarlegan fiðring sem hríslaðist um hálsinn á mér líkt og ósýnilegar flugur slæmdu í mig loftgerðum vængjum og reyndi árangurslaust að strjúka hann í burtu. Kjötmeistarinn var enn að raða hnífunum. Þegar ég setti kótelettupakkann á afgreiðsluborðið heyrði ég að hann bölvaði lágt, hendurnar greyptar utan um skeftin. Hinum megin við borðið voru augu hennar. Ég fann fyrir þeim skríða á skyrtukraganum eins og tveimur skordýrum og tók skyndilega að hósta. I hálsinum sat þungur kökkur sem ég reyndi að reka út í snöggum kviðum, en áttaði mig á að þær glumdu í salnum og brá höndunum fyrir vitin, en gat ekki stöðvað rokurnar. Ég hörfaði inn á lagerinn, settist hóstandi niður á stól og togaði í hálsmálið, en þorði ekki að hneppa frá tölunni. Kjötsögin í gangi, blaðið rann í gegn um freðin beinin með eldsnöggu ískri og í einni hóstakviðunni fann ég hönd kjötmeistarans á öxlinni, hann hélt á vinnuvettlingunum og lét þá detta niður í kjöltuna á mér. Ég hélt á þeim á meðan ég var að jafna mig og kinkaði kolli til kon- 9

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.