Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 31

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Page 31
JÓN Ö2XJR SNORRASON: Frelsi Daniels Santos Batlle y Ordónez tókst ekki að gera Uruguay að velferðarríki að evr- ópskri fyrirmynd, en umbætur Ordónez veitlu Uruguay stöðugleika sem var einsdæmi í Rómönsku Ameríku á fyrri hluta þessarar aldar. Velferðin grundvallaðist á útflutningi kvikfjárafurða, en sá útflutningur minnkaði er tók að líða á 6. áratuginn og leiddi til verri lífskjara og óðaverðbólgu. Arið 1966 var stjórnarskránni breytt og Pacheco Areco tók í stjórnartaumana. Ari síðar hófust harðar aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni og verkalýðs- félögunum. Valdbeiting varð daglegt brauð, skæruliðahreyfingin Tupa- maros barðist við stjórnarherinn í borgum og að lokum tók herinn sér einræðisvald árið 1973. Ari eftir að Areco tók völdin og hóf aðgerðir sínar var Daniel Santos handtekinn og sakaður um að vera óvinur ríkisins. Santos var foringi fé- lags ullariðnaðarmanna í ullarverksmiðju sem var í Paysandu. Hann var handtekinn daginn eftir fund sem hann hafði staðið fyrir í matsal verk- smiðjunnar. Þar var látið í veðri vaka að skipulagi efnahagsmála hefði ekki verið breytt jafnhliða umbótum og að framleiðni ykist ekki og sama máli gegndi um iðnvæðinguna. Verksmiðjan var komin langt á eftir í vélvæðingu miðað við samkeppnislönd eins og til dæmis Astralíu. Santos var látinn laus samkvæmt lögum um sakaruppgjöf sem gengu í gildi 10. mars 1985, eftir að lögleg og borgaraleg stjórn komst til valda. Pólitískir fangar, sem herforingjastjórnin hafði í haldi í stjórnartíð sinni, fengu frelsi um leið og Santos. Santos byrjaði að halda dagbók eftir að hann var leystur úr haldi og allt til dauðadags. Sunnudagurinn 10. mars 1985, dagur óttans Eg óttast að þið lesið bókina mína líkt og bók frá manni sem er orðinn vitskerlur. Ég óttast enn meir að ég verði tekinn út úr þjóðfélaginu, lok- aður inni á hæli. Ég óttast þó einna mest að mér verði gefin mjög sterk lyf 29

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.