Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 17

Stúdentablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 17
sökina og búist við mótbárum. Ekki tjáir að afsaka viðleitnina með því að ekkert hafi orðið úr áætlununum, því að á endanum varð lítið úr nokkrum áætlunum. >að er það sem reynt var að gera en mistókst sem skiptir máli - og það var æði gruggugt. Hitt er svo aftur annað mál að ef spilling snýst um það eitt að hugsa fyrst og fremst um sitjandann á sjálfum sér og láta hagsmuni annarra mæta afgangi, þá er útlit fyrir að ansi margir þátttakendur í atburðarásinni eigi skilinn spillingarstimpilinn. SVANDÍS SAT EIN HJÁ Vilhjálmur hitti sína borgarfulltrúa aftur síðar um daginn eins og ráðgert hafði verið. Fundur sem lagt hafði verið upp með sem hitting til frekariupplýsingar, umræðna og sáttaumleitana varð að tilkynningu frá Vilhjálmi um að allt væri klappað og klárt og staðfesta ætti samrunann á fundi eigenda Orkuveitunnar síðar þann sama dag. Það sauð á sexmenningunum í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna. Og enn hafði Vilhjálmur ekki fyrir því að upplýsa þá um kaupréttarsamningana sem styrinn hafði staðið um á fundinum með fulltrúum minnihlutans nokkrum klukkustundum áður. Eigendafundurinn þann sama dag gekk að mestu smurt fyrir sig. Vilhjálmur mætti og sagðist hafa skýrt umboð samherja sinna í flokknum til að klára málið, þótt heldur hafi þar verið fært í stílinn. Svandís Svavarsdóttir sat hjá við atkvæðagreiðslu um samrunann, ein stjórnarmanna OR. Hún lét bóka að óviðunandi væri að fá nokkra klukkutíma til að taka ákvörðun um svo flókið mál, að hún efaðist um að fundur sem boðaður væri með dags fyrirvara væri löglegur og að kaupréttarsamningar starfsmanna krefðust nánari skoðunar. Samruninn var síðan samþykktur. Og þá byrjaði ballið. REIÐU NAFNLAUSU BORGARFULLTRÚARNIR Sexmenningarnir í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis- manna, sem þegar voru ákaflega gramir oddvita sinum og stjórnendum OR, fengu fyrst veður af kaupréttarsamningunum í fjölmiðlum um kvöldið. í kjölfarið hófst einhver opinskáasta rógsherferð sem lagt hefur verið upp í gegn pólitískum samherja í manna minnum, og þótt hún hafi eflaust að margra mati verið réttmæt þá er ljóst að hún var í það minnsta óvenjuleg. Borgarfulltrúarnir sex baktöluðu Vilhjálm miskunnarlaust dögum saman við hvern þann blaðamann sem heyra vildi. Nafnlaus ummæli þeirra og vantraustsyfirlýsingar urðu efni í forsíðuuppslætti blaða marga daga í röð og ljóst var að verulega var f arið að hitna undir Vilhjálmi í borgarstjórastólnum. Sá eini sem kom fram undir nafni var Júlíus Vífill Ingvarsson, en þorði þá ekki að hafa uppi sömu gífuryrðin og sexmenningarnir voru annars óhræddir við. Þótt það væri algjörlega úr karakter þá skynjaði Vilhjálmur óánægju samherja sinna með kaupréttarsamninganastraxfimmtudaginn4.október, daginn eftir eigendafundinn. í viðleitni til að laga stöðuna hringdi hann í Bjarna Ármannsson til Afríku og bað hann um að slaufa kaupréttarsamningunum. Þeir væru of óvinsælir - fjaðrafokið of mikið. Eftir snörp orðaskipti við Vilhjálm á síðum blaðanna lét Bjarni þó til leiðast, og stjórn REI ákvað laugardaginn 6. október að eitt skyldi yfir alla starfsmenn REI og OR ganga. Enginn fengi að kaupa fyrir meira en 300 þúsund krónur. Undanþegnir voru Bjarni sjálfur og Jón Diðrik Jónsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, sem ráðinn hafði verið sem ráðgjafi hjá REI í september. Bjarni hafði fjárfest fyrir einn og hálfan milljarð í fyrirtækinu og Jón Diðrik fyrir 30 milljónir. Bjarni sagði að ekki væri hægt að bakfæra þau kaup þar sem þau væru löngu frágengin . ÚT MEÐ HAUK - SELJA REI Svo megn var óánægja sexmenninganna með framgöngu Vilhjálms að á föstudeginum áttu þau fund með forystumönnum Sjálfstæðisflokksins án Vilhjálms þar sem staðan var rædd. Fundurinn þótti til marks um gríðarmikið vantraust á leiðtogann í borgarstjórn.Ákveðiðvaraðborgarstjórnarflokkurinn í heild sinni myndi hittast á f undi á mánudegi og halda blaðamannafund að honum loknum. Á fundinum baðst Vilhjálmur þráfaldlega afsökunar og gekk að kröfum sexmenninganna. Þær voru fyrst og fremst tvær: 1. Annars vegar að Orkuveitan skyldi selja hlut sinn í REI eins fljótt og auðið væri. Þannig yrði REI einkavætt að fullu og komið i veg fyrir áhættufjárfestingar þess með almannafé. Þess ber þó að geta að á þessum tímapunkti höfðu sexmenningarnir ekki vitneskju um einkaréttarsamning OR við REI, sem tryggði REI óskoraðan aðgang að öllu hugviti OR og forgang að öllum verkefnum OR utan landsteinanna í 20 ár. 2. Hin krafan laut að því að vegna þess trúnaðarbrests sem orðið hefði þyrfti að skipta Hauki Leóssyni út sem stjórnarformanni OR fyrir borgarfulltrúa flokksins. Þetta var ákveðið án samráðs við Hauk, sem frétti af ákvörðuninni í fjölmiðlum. Það ber vott um mikla örvæntingu Vilhjálms að hann skyldi samþykkja þessa ráðstöfun án þess að gera Hauki viðvart, enda þeir afar nánir vinir til áratuga. Þá skal þess líka getið að Vilhjálmur átti sæti í stjórn OR og því var það lýsandi fy rir það hversu lítið traust borgarfulltrúarnir báru til hans að þeir teldu sig þurfa að sitja honum við hlið í stjórninni til að ekkert færi úrskeiðis. GLEYMDU BINGA Skömmu síðar sama dag kemur upp úr dúrnum að Sjálfstæðismennirnir í borgarstjórn höfðu í öllum hamaganginum við að bjarga eigin skinni gleymt að þeir væru í meirihlutasamstarfi með Birni Inga Hrafnssyni. Þeir höfðu ekkert ráðfært sig við hann áður en þeir lýstu því yfir að selja skyldi REI undan Orkuveitunni. Og það sem verra var: Hann var því andvígur. Björn Ingi var raunar ein helsta grúppía REI-verkefnisins og hafði staðið með stjórnendum OR og REI í gegnum öldusjóinn dagana áður. Honum var því ekki skemmt þegar samstarfsmenn hans í meirihlutanum fóru í lögguleik og hótuðu að leysa upp gleðskapinn sem hann hafði tekið svo ríkan þátt I að undirbúa. Ekki var það heldur til að treysta samstarf meirihlutaflokkanna að Björn Ingi deildi andstöðunni við söluáform Sjálfstæðismanna með fulltrúum minnihlutans í borgarstjórn, sem einnig töldu söluna hið mesta óráð. Lítil áhætta væri í raun fólgin í útrásinni sem REI stefndi í og að hún myndi án nokkurs vafa skila OR, og þar með almenningi, miklum ávinningi á skömmum tíma. Eftir þetta gerðust hlutirnar æði hratt. Fulltrúar minnihlutans komust vart hjá því að skynja spennuna sem ríkti milli Björns Inga og Sjálfstæðismanna og eftir áeggjan Alfreðs Þorsteinssonar og símtal frá Ólafi F. Magnússyni, sem mánuðum saman hafði verið i fríi frá borgarstjórn þjakaður af sjúkdómi sem ekki má nefna, lagði Dagur B. Eggertsson af stað í þá tiltölulega auðsóttu vegferð að mynda nýjan meirihluta að tjaldabaki. REI-LISTITEKURVIÐ REI-listinn svokallaði var kynntur við Ráðhúsið fimmtudaginn 11. október, myndaður um það markmið að leysa úr REI-flækjunni. Fljótlega spruttu upp sögur um örvæntingarfullar skilaboðasendingar á milli borgarfulltrúa þar sem lofað var gulli og grænum skógum, jafnvel án aðkomu Vilhjálms, í skiptum fyrir samstarf. Björn Ingi var orðinn nýr höfuðandstæðingur Sjálfstæðismanna, þótt samflokksmenn hans ættu raunar eftir að greiða fyrir hann leiðinaburt úr stjórnmálum nokkrum mánuðum síðar. Undarlegasta deilumálið í nógu undarlegum farsa varðaði meint tryggðarfaðmlag Björns Inga og Vilhjálms, sem átti sér annað hvort stað eða ekki kvöldið fyrir byltinguna, eftir því við hvern var talað. Ljóst var að annað hvort Björn Ingi eða Vilhjálmur laug - nema annar hvor hafi ekki munað betur. Það hefði svo sem ekki verið í fyrsta sinn sem Vilhjálmi förlaðist minni. Nýi meirihlutinn setti á fót stýrihóp undir forystu Svandísar Svavarsdóttur sem fara átti y fir rækilegayfir REI-málið og skipti út öllum sínum fulltrúum í stjórn Orkuveitunnar fyrir fagfólk. Bryndís Hlöðversdóttir tók við stjórnarformennsku. Aukinheldur var komin upp einkennileg staða í dómsmáli sem Svandís Svavarsdóttir hafði höfðað til að láta reyna á lögmæti eigendafundar Orkuveitunnar þar sem samruni REI og GGE var samþykktur. Lögmaður OR hélt uppi vörnum og sagði fundinn lögmætan. Svandís var nú skyndilega komin í mál við sjálfa sig, annars vegar sem kjörinn fulltrúi eigenda OR og hins vegar sem borgarfulltrúinn sem reyndi að fá fundinn úrskurðaðan ólögmætan. SAMRUNINN ÓGILTUR Á fundi borgarráðs þann 1. nóvember var samruni REI og GGE ógiltur og ákveðið að kaupa Bjarna og Jón Diðrik út úr félaginu. í kjölfarið féll Svandís frá dómsmáli sínu. Ein af ástæðum þess að mögulegt var að ógilda samrunann var hversu geyst var farið í hann á sínum tíma. Samningurinn var ekki fullkláraður þegar samruninn var samþykktur á eigendafundinum 3. október. Enn átti eftir að útfæra ýmis atriði nánar, og það var meðal forsendna þess að borgarráð taldi sig geta rift samningnum tæpum mánuði síðar. HÓFLEG ÚTRÁS SJÁLFSTÆÐISMANNA Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ólafur F. Magnússon kom Sjálfstæðismönnum meðal annars aftur til valda í borginni og Björn Ingi Hrafnsson sagði sig úr borgarstjórn eftir dramatisk innanflokksátök. Prinsipp Sjálfstæðismanna virðast hins vegar fokin út í veður og vind, því í samþykkt stjórnar Orkuveitunnar frá því um miðjan febrúar segir að REI skuli áfram starfa í útrásarverkefnum, en vera að fullu í eigu Orkuveitunnar. Þessa stefnubreytingu skýra Sjálfstæðismenn með því að nú eigi útrásin að vera hófleg, og í því sé fólgin lítil áhætta. En fyrst þetta er svo mikið prinsippmál fyrir borgarfulltrúunum að þeir voru í haust tilbúnir að snúa baki við eigin oddvita og stefna borgarstjórnarmeirihluta í hættu fyrir það, ætti varla að skipta höfuðmáli hversu mikið almannafé er spilað með, svo fremi sem það er meira en nokkrir hundraðkallar. Eða hvað? UMBOÐSLEYSIOG BORGARLÖGMENN Og þeir sem vonuðu að REI-eldurinn væri endanlega kulnaður máttu hins vegar þola það að hann blossaði með offorsi upp að nýju eftir að skýrsla stýrihóps Svandísar Svavarsdóttur var birt þann 8. febrúar. Skýrslan er harðorð með afbrigðum, og þó áttu fulltrúar allra flokka sæti í hópnum. I skýrslunni segir að kjörnir fulltrúar hafi í aðdraganda sameiningar REI og GGE farið langt út fyrir valdsvið sitt og tekið ákvarðanir án umboðs, almannahagsmunir hafi verið fyrir borð bornir og að málinu hafi verið flýtt úr hófi af óútskýrðum ástæðum. Vangaveltur um umboð hafa beinst að fjölda aðila. Lögfræðingar eru ekki á einu máli hvort stjórn REI hafði umboð til að taka ákvarðanir án samráðs við stjórn OR, móðurfélags síns. Einnig leikur vafi á umboði stjórnenda OR til að taka ákvarðanir fyrir hennar hönd. Stærsta spurningin snýr hins vegar að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og umboði hans til að samþykkja samrunasamninginn fyrir hönd Orkuveitunnar. Um þetta erulögfræðingar ósammála. Enn eitt axarskaftið af hálfu Vilhjálms leit dagsins ljós í Kastljósi 8. febrúar, þegar hann sagðist hafa ráðfært sig við borgarlögmann um umboð sitt. í ljós kom að þetta var ósatt. Hann hafði ekki ráðfært sig við borgarlögmann, heldur fyrrverandi borgarlögmann, sem svo heppilega vildi til að hét Hjörleifur B. Kvaran, var þá starfandi forstjóri Orkuveitunnar og hafði hagsmuni af því að samningurinn næði fram að ganga. VILLI RÚINN TRAUSTI - AFTUR í framhaldi af þeim þessum óheppilegu ummælum Vilhjálms, og þeim áfellisdómi sem kveðinn er upp yfir vinnubrögðum hans í skýrslunni, tóku að heyrast frá samflokksmönnum hans háværar kröfur um afsögn. Mistök, yfirsjónir, krónísk gleymska og trúnaðarbrestir vöktu ugg hjá mörgum sem hugsuðu með hryllingi til þess að Vilhjálmur ætti samkvæmt meirihlutasamkomulaginu við F-lista að taka að nýju við starfi borgarstjóra að ári. En eftir fundi með öllum áhrifamönnum flokksins, blaðamannafundi og feluleiki situr Vilhjálmur enn sem oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík og sýnir ekki á sér mikið fararsnið. Kapphlaupið um borgarstjórastólinn er þegar hafið meðal annarra borgarfulltrúa flokksins án þess að Vilhjálmur hafi gefið upp hvort hann mun víkja. Óvissan blívur. Og óvissa ríkir einnig um lyktir REI-málsins því enn er beðið niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, sem tók málið upp að eigin frumkvæði í október og sendi sveitarfélögunum sem eiga Orkuveituna fjölda áleitinna spurninga. Svörin hafa borist, en umboðsmaður liggur enn undir feldi. Og við bíðum. Við bíðum eftir að fá að vita hver verður næsti borgarstjóri i Reykjavík. Við bíðum eftir brottrekstrum og við bíðum eftir uppstokkunum. Við bíðum eftir afsögnum og ábyrgð. Við bíðum eftir því að sjá hvort þessi óþægilega áminning um hætturnar sem fylgja slælegri stjórnsýslu og misnotkun lýðræðislegs umboðs leiði til þess að komið verði í veg fyrir að svona nokkuð endurtaki sig. Við bíðum og vonum - en stillum bjartsýninni í hóf. ■ (Heimildir: Umfjöllum fjölmiðla um REI-málið) o

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.