Hlín - 01.01.1925, Side 18
3. gr. Takmark fjelagsins er:
a) Að annast um, að sjúklingar þeir á fjelagssvæðinu,
sem eigi eru þegar Iagðir á sjúkrahús, geti fengið nauð-
synlega hjúkrun og aðhlynningu Iærðrar hjúkrunarkonu,
þegar eigi er unt að veita þeim jafngóða hjúkrun á heim-
ili þeirra.
b) Að styðja að vörnum gegn útbreiðslu næmra sjúk-
dóma.
4. gr. Takmarki sínu Ieitast fjelagið við að ná með því
að taka lærða hjúkrunarkonu (eða konur) í þjónustu sína
og útvega nauðsynleg hjúkrunaráhöld. Oanga til þess
árstillög fjelagsmanna og annað það fje, er fjelaginu kann
að áskotnast. Enn fremur leitast fjelagið við að efla sem
mest sjóð sinn, til þess að af honum megi veita bág-
stöddum sjúklingum, sem ekki geta sökum aldurs eða
heilsufars orðið hluttækir fjelagar í sjúkrasamlagi, styrk
til meðalakaupa og þess annars, er þeir, að dómi hjúkr-
unarkonu, þarfnast nauðsynlega í sjúkdómi sínum.
5. gr. Fjelagsmenn ákveða sjálfir árstillög sín, þegar
þeir ganga í fjelagið. Minsta árgjaíd er 2 krónur, en
unglingar innan 15 ára geta verið fjelagar með 1 krónu
árstillagi. Greiðast árgjöldin eigi síðar en fyrsta vetrardag
ár hvert. Reikningsár fjelagsins telst frá 1. okt. til 30. sept.
Læknar eru þess mjög hvetjandi að hjúkrunarkonur fáist í hrepp-
ana. Þær aðstoða þá í starfi þeirra. Læknarnir yfirgefa sjúklinga
sína öruggari í höndum hjúkrunarstúlkunnar, og margur maður-
inn hefir losast við sjúkrahússvist, af þvi að þessa hjúkrun var að
fá í heimahúsum.
í sambandi við þetta er gaman að geta þess, að sama er uppi
á teningnum hjá Norðmönnum um styttri námsskeið í hjúkrun.
Frú Wexeisen-Jahn, formaður kvennasambands í Þrándheims-
stifti, skörungur mikill, hefir komið því til leiðar, að stúlkur fá að
læra IV2 ár í stað 3 eða 4. Hún áleit, eins og við hjer, að fá-
tækum sveitum væri að öðrum kosti ókleyft að fá ódýra hjúkrun.
Frú W.-J. stýrði ágætu hjúkrunarnema heimili í Þrándheimi, sem
fjelagið átti. Höfðu stúlkurnar þar athvarf meðan þær voru að
læra. Ritstj.