Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 11

Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 11
S U M A R G .1 () F I N 11 spurði Rut. „Jeg liefi mikið að gera, og yrði fegin að þú hjálpaðir mjer“. Eftir klukkustundu fór litla stúlkan glöð i bragði, fekk hún góðgæti með sjer, en hundurinn gat ekki farið með henni. „Hann verður að bíða“, sagði Rut, „þangað til eigandi hans kemur“. Og hún hjelt áfram að rita. En óðara var barið að dyrum. Konan opnaði. Umrenningur stóð útifyrir. Hann bað að gefa sjer eitt- hvað, en kvaðst fús að launa það með viðviki. „Gerðu svo vel og komdu inn, vertu velkominn", mælti konan. Gesturinn var nýskeð kominn úr sjúkrahúsi. Hann var að leita að kunningja sínurn, sem hafði boðist til að taka hann fyrir matvinnung. Svo fór hann að hrjóta í eldinn, cn hús- bóndinn kom inn með börnum sínum, til að matast. Þegar málliðin var úti, fóru bau. Nú kom heitmey ritstjórans og þurfti að segja frá morgunæfintýri sínu. „Æ, alt var þetta misskilningur“, sagði Rut. „Hann hugsaði ekki það, sem hann sagði. Það lá illa á honum. Nú hygg jeg að hann iðri Jiess og vildi feginn biðja þig fyrirgefningar. Sjáðu, þarna er hann á ferðinni, á jeg ekki að kalla á hann“. Rut hjelt vörð meðan hjónaefnin jöfn- uðu þrætu sína. Og hún tók aflur til starfa, þegar þau fóru og leiddust frá hiisi hennar. En aldrei hafði hún frið. Einn gesturinn rak annan. Alla vantaði eitthvað. Sumir þurftu sainúðar, aðrir til- sagnar, einir hjálp eða gjafir. En sól- skinið í sál hennar þraut aldrei. Hún tók hlýlega móti öllurn, og gerði mörgum úr- lasn. En það flögraði í huga hennar um kveldið, þegar hún var háttuð og börnin komin í ró. „Jeg er' þreytt. Gestanauðin íellar að gera útaf við mig. Jeg hefi ekki nægilegt þol, til að standa í þessu“. Og hún haiði orð á þessu \áð mann sinn. „Satt segir þú“, sagði inaður hennar. „Iui þarft hvildar. Við skulum fara út, þegar börnin eru sofnuð. Margt er að sjá og heyra. Við skulum hafa það eins og þegar við vorum í tilliugalifinu“. Það varð löng þögn, þangað til Rut gat svarað. „Þetla er vel mælt og prýðilega boðið, en jeg ætla að búa meira í haginn fyrir ykkur, svo getum við farið bráðum". Þetta kvehl voru þeir allir saman, borgarstjórinn, ráðherrann og ritstjór- inn. Þeir biðu eftir kennara sinum. Þeir voru mjög ánægðir með sjálfa sig, þvi að þeir þóttust allir hafa vel gert. Rut var fjarri. „Hún kemur seint eins og fyrri“, sagði ráðherrann. Engillinn birlist og mælti: „Segið mjer, hvað þjer hafið gjört í dag?“ „Jeg hefir ritað átakanlega ritgerð um bræðralag og ýmsar umbætur“, sagði ráð- herrann. „Jeg hefi ritað greinarkorn um ást mannanna hvers til annars, og þá von, scin vjer höfum uin endurbætur“, sagði ritstjórinn. „Greinin kemur i'it á morgun“. „Jeg hefi gerl áætlanir fyrir borg vora, sein koma ‘borgarbúum að liði, og borgin verður fyrirmyndarborg með tímanum". „Er þetta alt og sumt, sem þjer hafið gert?“ spurði engillinn. „Já, alt“, önsuðu borgarstjórinn, rit- stjórinn og ráðherrann einum rómi. „Skilduð þjer þá ekki byrjunina", sagði engillinn. „Urðu þjer ekki varir við litla stúlku, hund, beiningamann og —“ mælti engillinn, þegar Rut kom sltyndi- lega inn í herbergið. Hun greip fram i og sagði: „Fyrirgefðu, hvað jeg kem seint. Og enn þá leiðinlegra þykir mjer að verða að segja þjer, að jeg hefi engu komið í verk, af því sem þú ætlaðist lil að jeg gerði. „Hvers vegna?“ spurði engillinn. „Heimilisverkin tóku mikinn tima, svo

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.