Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 14

Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 14
14 S U M A R G J Ö F I N Auður og aflvaki. Getan býr i grend við nauðsyn. Pýþagóras. Allar þjóðir hafa löngum mikil vanda- mál og stórfeld viðfangsefni að berjast fyrii'. En hjá ungri þjóð, sem er í vexti og sækir upp og fram, eru viðfangsefnin jafnan óþrjótandi og sum ef lil vill of- jarlar. Mjög er þetta á þennan veg hjá þjóð vorri. Óþrjótandi viðfangsefni æpa á sterkan vilja og starfandi hönd, hvort skygnst er um sveitir landsins eða fram með fjörðum og víkum. í höfuðstaðnum þylcir margt nauðsyn- legt vanta og mikið í ólestri fara. Þurfa menn vart yfir því að býsnast. Svo er það jafnan, er vöxtur verður svo ör, sem hjer hefir reynst verða. Hitt mun aftur ómaksvert, að athuga, hversu við þessu má gera. Að vísu er fagmönnum ætlað um þetta að fjalla. Fleirum mun þó leyfast að leggja orð í belg. Er máli þessu því betur komið, sem fleiri kasta vetlingum og ganga á Ijandið til fylgis. Þegar rætt er um framkvæmd einhvers, er löngum klifað á því, að peninga vanti. Verður ekki annað sjeð, en menn ætli, að þeir sjeu aðalatriðið, „afl þeirra hluta sem gera skal“. Það er satt, að peningar geta verið inikils virði. En að þeir sjeu afl hlutanna, sem gera skal, er annað mál. Slíkan hugsunarhátt hygg jeg hvort- tveggja ,rangan og banvænan framgangi allra góðra mála. Hann mun eiga föður- hús hjá aurasálum, sem „hugsa i eins- eyringum“. Aflvaki framkvæmdanna er sannarlega af miklu göfugri ættum en peningar. Og mun jeg nú víkja nánar að þessu. Jeg vil hefja mál initt með því, að minna á aðra staðhæfingu, sem mjög er i ætt við þá, er minst var á hjer að framan. Staðhæfing þessi er svona: „Tíminn er. peningar". Hún er stutt, gagnorð og slá- andi, en nokkuð mikill peningahl jómur af henni. Lesari góður! Taktu tíu króna seðil upp úr pynju þinni, og sjá, þú hefir límann á milli fingranna. Hvort mundi maður í andarslitrunum líta svo á málið? Mundi honum ekki einmitt þá skiljast, að tenging tíma og lífs er skil- yrði þess, að viðkomandi einslaklingur geti haldið áfram að vera til? Mundi hann ekki sjá, að tíminn og liðandi stundir eru löglegir foreldrar alls lífs? Lífið er skilgetið afkvæmi jieirra. Á bill- jónum augnahlika byggist manns líf. Og svo er það um alt líf, í hvaða mynd, sein það birtist. Tíminn er ekki peningar. Tím- inn er faðir allrár þróunar. Fari menn illa með hann, fyrirgera þeir lífinu sjálfu. Hver stund má sannarlega vera móðir að miklu lífi. Og þá kem jeg að rauða þráðnum þess- arar ritgerðar: aflvuka framkvæmdanna, afli þeirra hluta, sem gera skal. Áminst staðhæfing segir það vera auð eða pen- irtga. Jeg vildi, að orðum mínum yrði ljeður sá kraftur, að þau gætu hrapað þessari staðleysu úr vitund almennings niður í myrkrið fyrir utan. Keypti Kristur kráft sinn fyrir pen- inga? Kom afl það, sem hann beitti öllu mannkyni til heilla um aldir, upp úr buddum auðkýfinganna? Afnam Lincoln þrælahald með aurum? Keypti Sólon lög sin við hankaseðlum? Hvaðan kom Sókratesi sagnarandinn og sannfæringar- krafturinn? Hvað knúði Kolumbus öróf rasta um óþekt úthaf? Voru það pening- ar, sem knúðu Perikles, til að gangast fyrir þvi, að öll alþýða fengi endurgjalds- laust að mannast við sjónleiki Alþening-

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.