Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 20

Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 20
20 S U M A R G J Ö F I N til að ganga þangaö í tómstundum og dást þar að öllu og læra. Mörg þeirra sögðu við mig: „Næsta sumar ætla jeg að hafa garðinn minn svona fallegan". Þau gátu gefið eða selt heimitinu afurð- irnar el'tir því sem þau vildu. Urðu þau þá að skrifa reikninga með og hera ábyrgð á að þeir væru rjettir. Leita í blöðunum að gangverði o. s. frv. Á þessu fundu þau til ábyrgðar á vinnunni og hvaða gildi hún hefur gagnvart heiminum. Mjer eru minn- isstæðir reikningar hjá þeim ininstu, sem voru nú illlesandi; en þau Urðu að basl- ast við að senda reikning með ef þau vildu selja, þó að það væri ekki nema hreðkur fyrir 10 aura. Skólaslofan var stór og hjört. Þar var bókasafn og safn allskonar muna lir dýra-, jurta- og' steinaríkinu. Stund- um fóru þau þangað inn i suniar. Þarna er engin stundatafla, heldur en hjá Montessori, engin tiinaskifting. Engin klukka, sem hringir þau út og frá þeirri vinnu, sem þau ef til vill eru nið- ursokkin í. Enginn kennari sem segir þessu barni, sem nú er með landafræð- ina sína og kortið og leitar að þeim stöð- um á hnettinum, þar sem kartaflan vex, að hætta nú og byrja á reikningnum. — Þarna var þögn og kyrð og hver sat við sill verk; börnin voru á ólíkum aldri, en það gerði ekkert lil. Einn sat með staf- stafrófskverið, þriðji leiknaði, fjórði skrif- aði sögu hrísgrjónanna eftir 'lítilli bók, sem hann hafði valið sjer, og skrifuð var með fallegri hendi skólastjórans og lá þar í skúffu ineð mörgum öðrum bókum um aðrar matjurtir og skrifaðar voru líka með hans hendi. Einn var að reikna út rúmmál kassans, seni fyrir framan hann stóð og hve mikið af gulli hann gæti rúmað. Einn las Grettissðgu, annar las í enskunáinsbók o. s. frv. Þau, sem sneru sjer til kennarans, töl- uðu lágt til að trufla ekki hin, og kenn- arinn svaraði honum og litskýrði nógu hátt til þess að hann heyrði, án þess að trufla. Þegar þau voru þreytt gengu þau hljóðlega lit til annarar vinnu. Þarna var líka stór vefstofa með mörgúm vefstól- um, stórum og smáum, og það kom fyrir að þau ófu í sumar, en mjer er sagt í hrjeíum þaðan núna, að þau sjeu mjög dugleg að vefa í vetur. í kjallaranum er stór smíðastofa með öllum þeim áhöldum, sem þar þurfa að vera; þar smíða þau allskonar gagnlega hluti. Þau stoppa, prjóna og sauma — vinna þannig öll verk, sem fyrir koma á heimili. í eldhús- inu vinna þau, vega og mæla í matinn, hnoða og hræra, baka brauð og kökur. Þau stærstu hjálpa til að þvo þvottana, breiða þvotlinn upp og ganga frá honum. Húsdýr voru þar ekki mörg í sumar, einn íslenskur hestur og tvær litlar kisur. Áður höfðu verið hænsni, kanínur, og þótti börnunum mjög vænt um þau, þó að til sjeu nú sögur um það, að skryklcjótt hafi gengið að gæta þeirra fyrir suinum þeirra, en út yfir tók, þegar átti að taka eitthvað af dýrunum af Hí'i og borða það; slíkt fanst þeim óhæfa, og fundu stöðugt að þessu, vildu sjálf ekki borða vini sína, og sögðust borða kartöflur og brauð í staðinn og sátu við það. Rosback segir frá, að það hafi liðið langur tími og þeim hafi ekkert unnist á, en að lokum gat fullorðna fólkið ekki daufheyrst lengur og smáminkuðu við sig kjöt og fisk, og nú síðustu þrjú árin hefir hvorugt verið þar á borðum. Telur hann heilsu harnanna miklu hetri eftir þann tíma. Rosbaeh er mjög næmur á sannleika þann, sem börn- in oft og tíðum flytja með hispurslausri hreinskilni. í byrjun reykli hann, eins og hann hafði vanið sig á. Börnunum gast ekki að tóbaksreykingum og báðu hann stöð-

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.