Sumargjöfin - 21.04.1927, Side 21

Sumargjöfin - 21.04.1927, Side 21
S Lí M A R G .1 Ö F I N 21 ugt uni að hætta að reykja, enda kendi hann þeirn, eins og við hin„ að tóbaks- neysla væri eitur, og að þau mættu al- drei venja sig á það. Hanri afsakaði sig i fyrstu með því, að þegar að gestir kæmu, sem Iangaði að reykja, yrði hann að reykja með þeim. Það fanst þeim rjett vera, og nú lofaði hann að reykja bara þegar gestir kæmu. Einn sunnudag, þeg- ar enginn gestur var, sem annars var mjög óvanalegt, kveikti hann sjer samt í vindli'. Eyvindur, sem þá var ö ára, liitti hann í garðinum og sagði undir eins: „Hver finst þjer vera gestur í dag?“ „Sneyptur ljet jeg vindilinn frá mjer“, segir hann. Sköinmu seinna, þegar gest- ir höfðu koinið um dagirin sat hann inni i stól og revkti vindil. Einn af drengjun- Lim horfði á hann og sagði: „Þegar jeg verð stór ætla jeg líka að reykja". Það ætt- ir þú ekki að gjöra, því það er ckki holt“. -— Hann spurði þá: „Af hverju gerir þú það þá?“ „Af því að jeg hefi einu sinni vanið mig á það, og það er svo crfitt að leggja það niður“. Þá mælti Eyvindur, sem var viðstaddur: „Það getur ekki verið erfitt að leggja vindilinn þarna niður“ — og benti á öskubakka. „Jeg í'ann að starf mitt sem uppeldis- fræðingur var í veði“, segir Roshach. Hann lagði vindilinn frá sjer og hefir ekki hragðað tóhak siðán — nú í 3 ár. Flestöll börnin sofa á sumrin úti i svefnskála. Hann er hygður i sama stil og svefnskálinn á Vífilsstöðum. Hann veit á móti suðri með stórum forgarði I sömu átt, þar sem iðlca má allskonar leikfimi. Þar er stórt birkitrje, scm breiðir limar sínar hátt yfir þak skólans og veggi for- garðsins og veitir skjól, en stelur líka sól. Jeg heyrði börnin segja frá þvi, að þau vöknuðu stundum við það að grein- arnar slægjusl í þakið þegar þær bærðust fyrir vindinum. í forgarðinum var líka baðker og þvottahorð. Jeg dáðist að því hvað börnin voru mennileg og sjálfbjarga. Þau vissu líka mikið og eftirtekt þeirra var sívakandi á öllu, sem fyrir augun har. Á kvöldin komu allir saman í dagstof- unni. Þar er sungið og einn les liátt eða segir frá. Þar voru meðal annars lesnar Islendingasögur hátt, þær sein til voru á málinu — Grettissaga, Njálssaga, Finn- bogasaga — já, og Heimskringla o. fl. Börnin vissu því mikið um Island, og höfðu ást á þvi, enda mintu þessar kvöld- stundir mig á kvöldvökur Islendinga. — Fullorðnir og börn sálu þarna og nutu sameiginlega lesturs sagna og fegurstu kvæða, sungu og livildust að dagsverki loknu. Jóna Sigurjónsdóttir. Sannleiksást. (Tekið úr hók eftir ágælan enskan ritliöfund, Bertraiul Russell). Það hlýtur að vera eitt aðalmarkmið hins siðferðilega uppeldis, að gera sann- leiksást að ríkuin vana. Jcg á ekki við sannléika í orðum eingöngu, heldur einn- ig i hugsun. Jeg hygg að það beri mjög sjald- an við, að unl sje að rjettlæta lýgi, miklu sjaldnar en ætla mætti. Og þá sjaldan að lýgi er afsakanleg á hún oftast rætur að rekja til þess að valdi í einhverri mynd liefur vcrið misbeitt, eða áð þjóðin öll er á kafi í einhverri óliæfu, t. d. ófriði. í inannfjelagi, sem stjórnað væri af öli mundu nauðlygar sjaldgæfar.

x

Sumargjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.