Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Síða 9

Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Síða 9
úTVARPSARBóK 7 varpsins, að það eigi að vera allsherjarskóli þjóðar- innar og er það ekki nerna gott og blessað, en þess er bara að gæta, að áheyrendurnir eru sjálfráðir hvort þeir hlusta á það eða ekki — þeir geta sem sje einnig »skrúfað fyrir« ef þeim líkar ekki það sem út er varpað. Fróðleikur sá sem útvarpið flytur mönn- um verður því að vera færður í skemtilegan búning, annars kemur hann ekki að notum, því að fólk hlust- ar ekki á hann. Hinu má heldur ekki gleyma, að að- alhlutverk útvarpsins er að flytja gleði og fróun inn á heimilin. Það sem yfirleitt einkennir ríkisútvarpið er hversu vjelrænt það er og tilbreytingarlítið — engu líkara en það sje rekið af vjel en ekki mönnum. Jeg þykist vita að við þessu verði sagt, að erfitt sje að fá nægi- legt útvarpsefni í landinu og að fje skorti til að gera dagskrána fjölbreyttari. Er það að miklu leyti rjett, en þó má gera meira en gert er með efni því sem fyrir er og með því fje sem handbært er, sje það aðeins athugað, en það kostar auðvitað starfsmenn útvarpsins meiri fyrirhöfn. Er t. d. alt of lítið gert af því, að varpa út raunverulegum atburðum, svo sem íþróttakeppnum (t. d. Islandsglímunni), hátíða- höldum o. fl., og er þó áhugi manna fyrir slíku mikill. Oti um land er fólk sem áhuga hefir fyrir þess háttar og hefði gaman af að fylgjast með því gegn um útvarpið. Síðastliðið sumar heimsóttu ýmsir merk- ismenn Reykjavík og er enginn vafi á að almenning- ur úti um land hefði haft ánægju af að heyra til þeirra og fylgjast með viðtökunum hjer gegn um útvarpið. Mjer dettur í hug heimsókn ítölsku flug- mannanna og Friðriks ríkiserfingja, flug Lindbergh’s

x

Árbók Félags útvarpsnotenda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Félags útvarpsnotenda
https://timarit.is/publication/618

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.