Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Side 11
úTVARPSARBöK
9
nokkrum orðum um skipun útvarpsráðsins, því að
á henni veltur auðvitað mikið um hvernig dagskrár-
valið tekst. Eins og stendur, er »ráðið« nú þannig'
skipað, að af fimm mönnum eru tveir barnakennar-
ar, einn háskólakennari og einn prestur — sá fimti
er fulltrúi útvarpsnotenda. Það má segja, að »ráðið«
sje skipað fjórum kennurum, en sönglistin, leiklist-
in, blaðamenskan o. fl. eiga þar engan fulltrúa.
Hvað vit er í þessu? Ekkert, og þessu þurfa útvarps-
notendur að beita sjer fyrir að fá breytt. Látum há-
skólann, sem æðstu mentastofnun landsins, eiga full-
trúa í »ráðinu« — það ætti að vera sjálfsagt — en
að hafa tvo barnakennara, virðist vera óþarft —
sjerstaklega þar sem útvarpið fæst svo lítið við barna-
fræðslu. Annars er alveg óþarft að hafa nokkurn
barnakennara í ráðinu, því að það getur haft sam-
vinnu við fræðslumálastjóra um þau mál, er snerta
barnafræðslu (hann gæti einnig veriö fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar í »ráðinu«). Yfirleitt verður ekki sjeð,
hvers vegna á að velja menn í útvarpsráðið eftir
stjettum; slíkt verður ávalt ranglátt, og ekki verður
sjeð, enn sem komið er, að það sje neitt til bóta. Eðli-
legast væri, að útvarpsnotendur fengju að velja í
ráðið þrjá menn af fimm. Geta þeir þá valið menn
eftir áliti sínu á þeim, og við næstu kosningu skift
um menn, ef þeim hefir ekki líkað við þá sem sein-
ast voru kjörnir. Mentamálunum ætti að vera fullvel
borgið í Jiöndum fulltrúa háskólans og ríkisstjórnar-
innar, jafn vel þó að útvarpsnotendur velji af sinni
hálfu menn, sem ekki eru færir um að annast þann
hluta dagskrárvinnunnar.
Þá skal vikið nokkrum orðum að starfssviði út-