Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Side 15
úTVARPSARBöK
13
Þegar sú áætlun var gerð/ voru hjer á álfu
alls 189 útvarpsstöðvar með um 600 kw loftnetsorku,
svo að þótt hún hafi verið heppileg á sínum tíma —
sem skiftar skoðanir eru um — þá er hún nú, þeg-
ar stöðvarnar eru orðnar 240, með um 5000 kw loft-
netsorku, orðin úrelt. Var því boðað til nýrrar ráð-
stefnu á síðastliðnu vori, eins og fyr var sagt, í
Luzern í Sviss, þar samin ný áætlun, sem hjer fer
á eftir. (I skrána eru aðeins teknar stöðvar með 7
kw í loftneti, eða þar yfir). Eins og sjá má, hefir
útvarpsstöðinni íslensku verið úthlutuð 1639 metra
aldan, ásamt Kovno í Lithaugalandi (7 kw), Madrid
I (150 kw) og Ankara í Tyrklandi (150 kw). 8 kílo-
riðum þar frá er svo Moskva I með 500 kw loftnets-
orku. Hvernig þetta muni gefast okkur, skal látið
ósagt, en auðsjeð er, að betra hefði okkur verið að
fá öldulengd fyrir neðan þá gömlu, t. d. kring um
1100 metra.
Stöö: Oldu- lengd, metrar öldu- tíðni kíló Hð| sek. Orka kw.
Moskva II. (Rússland). 1107 271 100
Lahti (Finnland). 1145 262 60
Oslo (Noregur). 1186 253 60
Leningrad (Rússland). 1224 245 100
Norður-Portúgal. 1261 238 20
Kalundborg (Danmörk). 1261 238 60
Warschau (Pólland). 1304 230 150
Huizen (Holland). 1345 223 ?